Fara beint í efnið
Handbækur
Rekstur

Telva Floti

Sjáðu bílana á korti í rauntíma, hvar þeir eru og hvert þeir stefna

Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20263 kaflar

Telva Floti sýnir bílana þína á korti í rauntíma. Þú sérð hvar hver bíll er, hvort hann er á ferð og hvert hann stefnir, með lista við hliðina svo þú getir leitað og smellt á einn bíl. Þetta gefur þér yfirsýn yfir dreifinguna án þess að hringja og spyrja hvar bíllinn er.

Til hvers

  • Sjá alla bílana á korti á sama tíma.
  • Finna fljótt ákveðinn bíl með leit eða síu.
  • Sjá hvort bíll er á ferð og í hvaða átt hann stefnir.
  • Skoða nánari upplýsingar um hvern bíl.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft að skrá þig inn í Telvu með aðgang að flotanum.
  • Staðsetningarnar koma úr GPS-kerfi bílanna í rauntíma.

01Kort af flotanum

  1. Hvar bílarnir eru núna

    Kortið sýnir staðsetningu hvers bíls í rauntíma úr ArcticTrack. Bílar með staðsetningu birtast sem merki sem snýr í akstursstefnuna, svo þú sérð ekki bara hvar bíllinn er heldur hvert hann stefnir.

  2. Fjórar stöður

    Bíll er annaðhvort á ferð, með kveikju en kyrr, eða slökktur og kyrr. Fjórða staðan er bíll sem sendir enga staðsetningu. Þessi aðgreining skiptir máli: bíll með kveikju sem stendur kyrr er í bið eða á lestun, ekki bilaður.

    ÁbendingFjöldinn í hverri stöðu stendur efst og er smellanlegur · hann síar kortið og listann niður í þá stöðu eina.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið