Fara beint í efnið

Félagið á bak við kerfið.

Telva ehf. er íslenskt hugbúnaðarfélag. Hér eru þær upplýsingar sem kaupandi, öryggisteymi og endurskoðandi biðja um: skráning félagsins, hverjir standa að því og hvernig kerfið er rekið.
Félag
Telva ehf.
Kennitala
490626-0930
Heimilisfang
Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík
Atvinnugrein
62.01.0 Hugbúnaðargerð
Geir Gunnar Geirsson, stofnandi og stjórnarformaður Telvu
Geir Gunnar GeirssonStofnandi og stjórnarformaður Telvu
Stofnandi og teymi

Frá rekstrarþörf að fullmótuðu kerfi.

Geir Gunnar Geirsson stofnaði Telvu út frá eigin reynslu sem framkvæmdastjóri Stjörnugríss. Í daglegum rekstri voru mikilvægar upplýsingar til staðar en dreifðar milli ólíkra kerfa og sjaldnast aðgengilegar þegar þeirra var mest þörf.

Telvu er stýrt af öflugu teymi sérfræðinga í hugbúnaðarþróun, bókhaldi, lögfræði og rekstri. Að þróuninni koma notendur sem vinna í kerfinu á hverjum degi og fyrirtæki sem reka starfsemi sína alfarið í Telvu. Þannig er kerfið byggt upp í raunverulegum íslenskum rekstri.

Sú nálgun hefur mótað Telvu frá upphafi: tæknin lagar sig að rekstrinum, en ekki öfugt.

Stutt er frá raunverulegri þörf að útfærðri lausn, og hver eining er prófuð í daglegum rekstri áður en hún telst tilbúin.

Hlutverk
Stefna, vöruþróun og gæði
Bakgrunnur
Framleiðsla og matvælavinnsla
Stjórn
Stjórnarformaður og einn eigenda Telvu ehf.
Uppruninn

Þróað í raunverulegum rekstri

Telva varð til út frá verkefnum í daglegum rekstri: yfirferð innkaupsverðs, utanumhaldi pantana og gæðaskráningu í framleiðslu. Markmiðið var að gera upplýsingarnar aðgengilegri þeim sem þurftu að vinna með þær.

Reynslan úr rekstrinum hefur mótað þróun Telvu. Einingar leysa ólík verkefni og fyrirtæki velja þær sem henta eigin starfsemi.

Stefnan er óbreytt: sjálfstætt íslenskt stjórnkerfi í flokki með stóru bókhaldskerfunum. Telva les úr þeim, reiknar áfram og gerir það sem þau gera ekki.

Á bak við kerfið

Rekstur, vöktun og viðbrögð

Telva er þjónusta en ekki hugbúnaður sem er afhentur og gleymdur. Kerfið er vaktað, uppfært og lagfært af sama fólki og byggði það.

  • Vöktun á tengingunum

    Slitni tenging við bókhalds- eða vinnslukerfi fer viðvörunin af stað hjá Telvu, ekki hjá notandanum.

  • Vaktað allan sólarhringinn

    Skjáir, næturkeyrslur og sjálfvirkar skýrslur ganga á meðan þú sefur. Því er vaktað á sama tíma, ekki bara á skrifstofutíma.

  • Hver breyting er prófuð áður en hún birtist

    Tölurnar eru bornar saman á krónu við kerfið sem þær koma úr og prófin verða að standast. Stærri breytingar fara í sjálfstæða rýni.

  • Rekjanlegt, alltaf

    Hver breyting er skráð með höfundi, tíma og ástæðu. Endurskoðandinn fær lesaðgang sem rennur út af sjálfu sér.

Þegar eitthvað klikkar

Skilgreind viðbrögð við atvikum

Munurinn á góðum birgi og slæmum liggur í viðbragðinu, ekki í því að ekkert komi upp. Þess vegna er atvikastefnan skrifuð niður og hún gildir eins hjá öllum.

  • A

    Stopp

    Röng tala, kerfið niðri eða innskráning virkar ekki.

    Allt annað leggst niður og það er lagað strax.

  • B

    Galli

    Síða sem brotnar, sýn sem skilar ekki því sem hún á að skila eða útlitsbrot sem sést.

    Lagað innan sólarhrings og skráð.

  • C

    Ábending

    Óþægindi, hægagangur eða orðalag sem mætti vera skýrara.

    Fer á verkefnalistann og fær forgang.

Fjórar tegundir þekkingar á bak við hverja einingu

  • 01

    Vara, smíði og innleiðingar

    Hönnun, forritun og innleiðing, unnin af sama fólki og svarar í símann.

  • 02

    Bókhalds- og rekstrarþekking

    Bókarar með áratuga reynslu úr íslenskum rekstri fara yfir hverja bókhaldsleið áður en hún opnast.

  • 03

    Lögfræði og félagaskráning

    Samningar, persónuvernd og félagaskráning eru í höndum lögmannsstofu.

  • 04

    Reynsla úr rekstri

    Verkstjórar og starfsfólk í daglegum rekstri prófa einingarnar við raunverulegar aðstæður áður en þær teljast tilbúnar.

Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.