Sláturgögn til ráðuneytis
Mánaðaryfirlit slátrunar eftir sláturhúsi og afurð, forskoðað sem PDF og sent á viðtakendur ráðuneytisins
Útgáfa 1.0Uppfært 3. september 20264 kaflar
Skýrslan tekur saman slátrun mánaðarins: fjölda dýra, þyngd, meðalþyngd og nafnþyngd, sundurliðað eftir sláturhúsi og afurð. Hún er byggð á daglegum sláturyfirlitum framleiðslukerfisins, forskoðuð sem PDF áður en hún fer, og send á þá viðtakendur sem eru skráðir. Ekkert fer út án þess að þú staðfestir sendinguna.
Til hvers
- Skila mánaðaryfirliti slátrunar án þess að taka það saman í töflureikni.
- Sjá slátrun eftir dögum og fjölda sláturdaga í mánuðinum.
- Bera mánuðinn saman við fyrra ár á sama grunni.
- Forskoða skýrsluna sem PDF áður en hún er send.
- Ráða hvort nöfn búa fylgi með eða séu falin.
Áður en þú byrjar
- Gögnin koma úr daglegum sláturyfirlitum framleiðslukerfisins. Berist yfirlit dagsins ekki vantar þann dag í mánuðinn.
- Að minnsta kosti einn viðtakandi þarf að vera valinn áður en hægt er að senda.
01Mánaðaryfirlitið
Veldu mánuð
Tímabilsvalið býður þennan mánuð, síðasta mánuð, ársfjórðung, þetta ár og síðasta ár. Allar tölur fylgja valinu.
Lestu tölurnar
Efst stendur slátrað alls og fjöldi sláturdaga. Taflan sundurliðar eftir sláturhúsi og afurð með fjölda, þyngd, meðalþyngd og nafnþyngd, og línuritið sýnir slátrun eftir dögum með meðaltali á dag.
Berðu saman við fyrra ár
Samanburðurinn miðar við sama tímabil í fyrra. Vanti gögn þaðan stendur það og enginn samanburður er dreginn.
Sæktu hrá gögn
Þurfirðu að vinna með tölurnar sjálf sækirðu þær í töflureikni. Það er sama undirstaða og skýrslan byggir á.
Segðu okkur hver er að lesa
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.