Salan, greiðslan og bókunin í einni færslu.
Telva Greiðslur tengja reksturinn við greiðsluþjónustu Straums. Straumur tekur við kortinu og Telva rekur reksturinn: hver greiðsla bókast á rétta sölu eða reikning og stemmir á krónu við uppgjör Straums og bankann.
rekin í Telvu.
Straumur tekur við kortinu. Telva rekur reksturinn.
Telva biður Straum um greiðslu fyrir hönd félagsins, tekur við staðfestri niðurstöðu og bókar hana á rétta pöntun eða reikning. Peningar og kortagögn fara aldrei um Telvu.
Kortið
Kaupandinn slær kortið inn á greiðslusíðu, í greiðsluform, í tengil eða á posa Straums. Aldrei í Telvu.
Straumur
Straumur heimilar greiðsluna og sendir Telvu undirritaða tilkynningu um niðurstöðuna.
Telva
Telva staðfestir undirskriftina, rekur greiðsluna til réttrar útstöðvar og félags og skráir hana aðeins einu sinni.
Bókhaldið
Greiðslan bókast á pöntunina, söluna eða reikninginn og stemmir við uppgjör Straums og innborgun á banka.
0kortanúmer fara um Telvu
Kortagögn eru aðeins slegin inn á síðum, í formum, tenglum og posum Straums.
1bókun á hverja greiðslu
Sama tilkynning getur borist oft. Hún bókast aðeins einu sinni.
3þrep afstemmingar
Hver færsla, hvert uppgjör Straums og hver útborgun er borin saman á krónu.
Upphæðin er slegin inn einu sinni.
Kassi Telva Verslunar sendir upphæðina á posa Straums, sýnir kaupandanum QR-kóða eða býr til greiðslutengil. Salan klárast þegar Straumur staðfestir greiðsluna og bókast um leið.
- Kaffi590 kr.
- Samloka1.290 kr.
- Kleina340 kr.
- Safi490 kr.
- Súpa1.590 kr.
- Vatn290 kr.
Karfa
- 1 × Kaffi590 kr.
- 1 × Samloka1.290 kr.
- 1 × Kleina340 kr.
Þar af VSK 11 %220 kr.
QR á skjá
Kaupandinn skannar kóðann með símanum og greiðir á greiðslusíðu Straums.
Posi Straums
Kassinn sendir upphæðina á posann um netið. Hún er aldrei slegin inn tvisvar.
Greiðslutengill
Tengill á greiðslusíðu Straums, til dæmis fyrir pöntun sem er greidd síðar.
Hvar sem salan verður til, greiðist hún.
Greiðsluformið á síðu verslunarinnar.
Íhlutir Straums sitja á vef félagsins. Kaupandinn greiðir án þess að fara af síðunni, kortagögnin fara beint til Straums og greiðslan bókast á pöntunina þegar Straumur staðfestir hana.
- Kortaform Straums á síðu félagsins
- Apple Pay á eigin léni eftir skráningu hjá Straumi
- Tilkynning Straums staðfestir greiðsluna, ekki vafrinn
Frá umsókn til uppgjörs í sex skrefum.
Félagið sækir um, Straumur staðfestir og Telva sér um afganginn: hver greiðsla ratar á réttan stað og hver útborgun er stemmd af.
Umsókn úr Telvu
Félagið sækir um þjónustu Straums í Telvu. Kennitala, félagsform og vefslóð koma úr gögnum félagsins.
Samningurinn tengist
Straumur staðfestir samninginn. Telva tengir hann við félagið aðeins ef kennitalan passar og félagið sótti sjálft um.
Útstöðvar félagsins
Hvert félag á eigin samning og eigin útstöðvar. Greiðslubeiðni fer aðeins um útstöð félagsins sem á söluna.
Greiðslan
Greiðslusíða, greiðsluform, tengill, QR eða posi, eftir því hvar salan verður til. Kortið er alltaf slegið inn hjá Straumi.
Staðfesting og bókun
Undirrituð tilkynning Straums er eina sönnunin. Greiðslan bókast á söluna eða reikninginn, aðeins einu sinni.
Uppgjör og afstemming
Sala, færslur Straums og innborgun á banka eru bornar saman á krónu. Munur birtist strax, með skýringu.
Peningarnir hjá Straumi. Yfirsýnin í Telvu.
Kortagögn fara aldrei um Telvu
Aðeins greiðslusíða, greiðsluform, tenglar og posar Straums taka við korti. Telva sér aldrei meira en tegund og fjóra síðustu stafi.
Hvert félag á sinn samning
Greiðslubeiðni fer aðeins um útstöð félagsins sem spyr, lesin úr grunni Telvu, aldrei úr beiðni vafrans.
Staðfesting Straums er sönnunin
Hver tilkynning er staðfest með undirskrift, rakin til síns félags og bókuð í mesta lagi einu sinni.
Tölurnar stemma á krónu
Sala í Telvu, færslur Straums og útborgun á banka eru bornar saman. Munur birtist í Telvu og vakt segir frá.
Spurt og svarað.
Þarf félagið eigin samning við Straum?
Já. Hvert félag á eigin samning og eigin útstöðvar hjá Straumi. Umsóknin er send úr Telvu með gögnum félagsins, og Telva tengir samninginn þegar Straumur hefur staðfest hann.
Fara kortaupplýsingar um Telvu?
Nei. Kortið er aðeins slegið inn á greiðslusíðu, í greiðsluform, í tengil eða á posa Straums. Telva tekur við staðfestri niðurstöðu og geymir í mesta lagi tegund korts og fjóra síðustu stafi.
Hvernig veit Telva að greiðsla tókst?
Straumur sendir undirritaða tilkynningu. Telva staðfestir undirskriftina, rekur greiðsluna til réttrar útstöðvar og félags og bókar hana aðeins einu sinni, þótt sama tilkynning berist oftar.
Hvenær berst útborgun á banka?
Að jafnaði þremur virkum dögum eftir sölu. Telva ber útborgunina saman við söluna og uppgjör Straums og sýnir mun ef hann er einhver.
Hvað gerist ef Straumur svarar ekki?
Kassinn býður „Posi utan kerfis“ og reikningar og tenglar sýna að greiðsla sé óvirk í bili. Greiðsluhnappur birtist aldrei nema samningur félagsins sé staðfestur virkur.
Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?
Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.
Kynning án skuldbindingar.