Hvernig skrá starfsmenn eftirlit?
Á spjaldtölvu með starfsmannakorti. Snertilestur korta virkar í Chrome á Android-spjaldtölvu; á öðrum tækjum er kortanúmerið slegið inn.
Hvað gerist þegar mæling fer út fyrir mörk?
Frávik verður til sjálfkrafa með ábyrgðarmanni og fresti. Úrbótin er skráð í sömu aðgerð.
Hvað sér eftirlitsmaður?
Eftirlitsmappan sýnir hverja skráningu tímabilsins, hver skráði og hvað var gert við frávik. Ógerð verk fylgja með.
Er hægt að flytja inn skráningar úr eldra kerfi?
Já, úr CSV-skrá úr hvaða kerfi sem er. Skráningarnar halda upprunalegum dagsetningum og sama lína fer ekki inn tvisvar.
Sjá starfsmenn á gólfinu tölur félagsins?
Nei. Verkstjórar og starfsfólk sem sinnir þrifum komast aðeins í eigin verk, án sölu, talna félagsins eða gæðamála annarra deilda.
Hvaðan koma hitamælingarnar?
Kælivöktun les hitamælingar úr nemum í kælum og frystum og sýnir þær á teikningu af lagernum.