Hvernig hækkun finnst
Verðvaktin les innkaupareikninga sem berast í Reikningamóttöku og Samþykktir. Hún býr ekki til ný gögn, heldur horfir á það sem kemur inn hvort eð er. Nýjasta verð er borið saman við grunnlínu, verð síðasta mánaðar og sama tíma í fyrra. Grunnlínan er miðgildi fyrri mánaða og samanburðurinn er gerður í mynt birgisins.


