Fara beint í efnið

Innkaupakerfi frá reikningi að samþykkt

Telva tekur við innkaupareikningum á einum stað, les þá línu fyrir línu og sendir í samþykkt. Innkaupin sjást síðan eftir birgjum, vörum og tímabilum.

Prófa sýnidæmið
Reikningar í Telvu í síma: fjöldi reikninga á tímabilinu, ógreitt, sala og hlutfall reikninga með fylgiskjali.

Skjámynd úr Telva Sýnidæmi, með tilbúnum gögnum.

  1. Reikningamóttaka

    Reikningar frá birgjum berast á einn stað í stað þess að liggja í pósthólfum. Telva les rafræn skeyti og PDF-reikninga línu fyrir línu og dregur út birgi, upphæð og virðisaukaskatt. Reikningurinn er yfirfarinn og sendur í samþykkt, eða stofnaður sem drög í bókhaldskerfinu þar sem tengingin leyfir það.

  2. Samþykkt í símanum

    Samþykkjandi sér innkaupin sem bíða, raðað eftir eindaga, og samþykkir með einum smelli í símanum. Reikningi má hafna eða fresta með athugasemd, og birginn má spyrja beint úr kerfinu. Í yfirferð standa frumrit og reikningur hlið við hlið og margir reikningar eru afgreiddir í röð. Samþykkt í Telvu er ekki bókun, svo skuldabókhaldið helst skýrt.

  3. Verðið borið saman við síðasta reikning

    Um leið og línurnar eru lesnar ber Telva verðin saman við það sem sami birgir rukkaði síðast fyrir sömu vöru. Hækkun sést því strax við móttöku, áður en reikningurinn fer áfram. Verðvaktin fylgist síðan með endurteknum innkaupum yfir lengri tíma og lætur vita af hækkunum áður en þær safnast upp.

    Sýnidæmi
    Verðvakt í Telvu: hækkunarspjald fyrir birgi með verði áður og nú, prósentuhækkun, ársáhrifum og lista yfir vaktaða liði.
  4. Innkaup eftir birgjum og vörum

    Innkaupagreiningin sýnir heildarinnkaup á völdu tímabili, borin saman við sama tímabil árið áður, stærstu birgjana og hlutdeild hvers þeirra og í hvaða vörur peningarnir fara. Birgjaspjöldin lesa sömu reikninga með sömu reglum, svo tölurnar stemma. Reikningaleit nær yfir línur sölu- og innkaupareikninga og PDF-fylgiskjöl þeirra.

Einingar

Einingarnar sem koma við sögu.

Allar einingar Telvu
  • Reikningamóttaka

    Telva les PDF-reikninginn, dregur út birgi, upphæð og VSK og setur hann í samþykktarferli.

  • Samþykktir

    Samþykktu innkaup með einum smelli, í símanum, með réttum tölum fyrir framan þig.

  • Reikningar

    Veldu tímabil og sjáðu hvern reikning með fylgiskjalinu sjálfu.

  • Reikningaleit

    Leitaðu í línum sölu- og innkaupsreikninga og PDF-fylgiskjölum þeirra.

  • Birgjar

    Innkaup eftir birgjum, með sögu, kjörum og þróun hvers og eins.

  • Innkaupagreining

    Yfirsýn yfir innkaup eftir birgjum og vörum styður undirbúning samninga.

  • Verðvaktin

    Vaktar hverja verðhækkun á innkaupum og lætur þig vita áður en hún safnast upp.

  • Innkaupatillögur

    Hvað á að panta og hvenær, reiknað af söluhraða og afgreiðslutíma.

Innkaupakerfi

Spurt og svarað.

Þarf að slá innkaupareikninga inn?

Nei. Telva les PDF-reikninga og rafræn skeyti og dregur út birgi, upphæð og virðisaukaskatt.

Er hægt að samþykkja reikninga í símanum?

Já. Samþykktir sýna réttar tölur og reikningur er samþykktur með einum smelli.

Bókar Telva reikninginn þegar hann er samþykktur?

Samþykkt í Telvu er ekki bókun. Hvort reikningur verður að drögum í bókhaldskerfinu fer eftir kerfi, tengingu og heimildum.

Fær birgirinn að vita ef reikningi er hafnað?

Það má velja að láta birginn vita með pósti í merkjum félagsins. Ekkert er sent sjálfkrafa.

Með hvaða bókhaldskerfum virkar innkaupakerfið?

Í Telvu eru tengingar við Business Central, dk, Reglu og Payday. Hvaða gögn og aðgerðir eru aðgengileg fer eftir kerfi og aðgangsheimildum.

Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.