Virkar birgðakerfið án Business Central?
Já. Félag án ytra bókhaldskerfis heldur eigin birgðabók í Telvu með fjórum hreyfingum: inn, út, talningu og leiðréttingu. Hólf og lotur eru ekki með í einfalda sniðinu.
Hvað les Telva úr dk og Reglu?
Birgðastöðu hverrar vöru, svo lagerlisti og verðmæti séu rétt. Telva skrifar ekki í bókhaldskerfi viðskiptavinar án samnings og prófunar.
Hvernig eru innkaupatillögur reiknaðar?
Út frá söluhraða og afgreiðslutíma. Kerfið reiknar líka pöntunarpunkt og öryggisbirgðir fyrir hverja vöru.
Virkar skanninn þegar netið dettur út?
Hólfafærslur, talningar og aðrar algengar aðgerðir vistast í símanum og sendast þegar sambandið kemur aftur. Móttaka og tiltekt þurfa lifandi samband við bókhaldskerfið.
Er hægt að nota handtölvu í stað síma?
Já. Telva keyrir líka á Zebra-handtölvum og notar þá innbyggðan skanna tækisins, án sérstaks forrits.