Fara beint í efnið

Tímaskráning frá stimplun að launavinnslu

Telva Tímavakt er tímaskráningarkerfi sem heldur utan um stimplanir, vinnustundir og yfirferð tímaskráninga. Frávik eru dregin fram áður en gögnin fara áfram í launavinnslu.

Prófa sýnidæmið
Vinnustundir í Telvu í síma: unnar stundir vikunnar, yfirvinna, launakostnaður mánaðarins og mæting.

Skjámynd úr Telva Sýnidæmi, með tilbúnum gögnum.

  1. Stimpilklukka á vegg eða í síma

    Starfsfólk stimplar sig inn á spjaldtölvu á vegg eða í símanum. Auðkenning byggir á andliti, PIN-númeri og tækjabindingu, og engin fingraför eru notuð. Stimpilklukkan getur líka lesið úr aðgangskerfi sem er þegar á vinnustaðnum. Viðverusýnin sýnir hverjir eru í húsi og hve lengi, og við rýmingu opnast listi yfir alla sem eru inni, flokkaður eftir deildum.

  2. Frávik dregin fram

    Gleymd útstimplun, stök stimplun og of löng vakt birtast sem frávik, vika í einu. Kerfið leggur til réttan tíma út frá venjulegum degi viðkomandi og verkstjóri samþykkir tillöguna eða setur annan tíma. Mörg frávik með sömu skýringu má afgreiða í einu. Líði minna en ellefu klukkustundir milli vakta er hvíldarbrot dregið fram ásamt reiknuðum frítökurétti.

  3. Leiðréttingar sem má rekja

    Hver leiðrétting á stimplun krefst ástæðu. Upprunalegi tíminn sést áfram, ásamt því hver breytti og hvers vegna. Sé leiðrétting röng er hún afturkölluð og engu er eytt, svo slóðin helst heil. Launin byggja þá á tölum sem hægt er að rekja til upprunans.

  4. Vinnustundir tilbúnar fyrir launin

    Vinnustundir taka saman tímaskráningu, yfirvinnu og álag fyrir launakeyrsluna. Uppgjörið reiknar viðveru hvers starfsmanns yfir valið tímabil og er sótt sem CSV-skrá fyrir launavinnsluna. Launakostnaður sýnir hvað vinnuaflið kostar sem hlutfall af sölu, niður á deild og vakt. Fríbeiðnir og samþykktir eru á sama stað, með stöðu hvers og eins.

  5. Kostnaður leiðréttinga

    Mánaðamótareiknivélin metur hvað leiðréttingarvinna í tímaskráningu kostar á ári: gleymdar útstimplanir, of langar vaktir og dagar sem vantar. Hvert gildi í henni er forsenda með sjálfgefnu viðmiði, ekki mæling á rekstri félagsins. Forsendunum er breytt eftir hverju félagi og niðurstaðan sýnir kostnaðinn á ársgrundvelli.

Einingar

Einingarnar sem koma við sögu.

Allar einingar Telvu
  • Telva Tímavakt

    Utanumhald stimplana, vinnustunda og yfirferðar tímaskráninga. Frávik eru dregin fram áður en gögn fara áfram í launavinnslu.

  • Stimpilklukkan

    Spjaldtölva á vegg eða síminn í vasanum. Andlit, PIN og tækjabinding, engin fingraför. Les líka úr aðgangskerfinu sem er fyrir.

  • Vinnustundir

    Tímaskráning, yfirvinna og álag, tilbúið fyrir launakeyrsluna.

  • Launakostnaður

    Sjáðu hvað vinnuaflið kostar sem hlutfall af sölu og hvert hlutfallið stefnir, niður á deild og vakt.

  • Starfsmannaskrá

    Flettu upp starfsmanni og sjáðu ráðningarkjör, deild og sögu, lesið beint úr launakerfinu.

  • Frí og orlof

    Fríbeiðnir og samþykktir á einum stað, með stöðu hvers og eins.

Tímaskráning

Spurt og svarað.

Hvernig stimplar starfsfólk sig inn?

Á spjaldtölvu á vegg eða í símanum. Auðkenning byggir á andliti, PIN-númeri og tækjabindingu, og engin fingraför eru notuð.

Er hægt að nota aðgangskerfið sem er fyrir?

Stimpilklukkan getur lesið úr aðgangskerfi sem er þegar á vinnustaðnum. Hvaða kerfi og með hvaða hætti er metið við innleiðingu.

Hvað gerist ef einhver gleymir að stimpla sig út?

Stimplunin birtist sem frávik. Kerfið leggur til tíma út frá venjulegum degi viðkomandi og verkstjóri samþykkir eða leiðréttir.

Sést hver breytti stimplun?

Já. Ástæða er skylda við hverja leiðréttingu og upprunalegi tíminn sést áfram, ásamt því hver breytti.

Fara vinnustundirnar beint í launakerfið?

Vinnustundir eru teknar saman fyrir launakeyrsluna og uppgjörið er sótt sem CSV-skrá. Hvernig gögnin berast launakerfinu fer eftir kerfi og uppsetningu.

Er hægt að skoða Tímavakt áður en kynning er bókuð?

Já. Tímavakt er í Telva Sýnidæmi á demo.telva.is, með tilbúnum gögnum og án innskráningar.

Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.