Fara beint í efnið
Handbækur
Stjórn & stillingar

Aðgangur og notendur

Þrjú lög: hvað sést · hvað má vista · hvað má valda tjóni

Útgáfa 2.1Uppfært 3. september 20265 kaflar

Á Notendur-síðunni ræðurðu hverjir komast inn í Telvu og hvað þau mega gera þar. Aðgangurinn er byggður í þremur lögum sem vinna saman: svæðin segja hvað manneskjan SÉR, breyta-rofinn segir hvort hún megi VISTA, og hættuheimildirnar segja hvaða óafturkræfu aðgerðir hún má framkvæma. Hlutverkið (til dæmis Stjórnandi, Sölumaður eða Verkstjóri) er fljótleg byrjunarstaða sem fyllir öll þrjú lögin í einu, og þú getur fínstillt hvert hak á eftir.

Til hvers

  • Hleypa nýju starfsfólki inn með réttum aðgangi frá fyrsta degi.
  • Aðskilja daglega vinnu frá aðgerðum sem geta valdið tjóni ef þær eru gerðar óvart.
  • Sjá í einni línu hvað hver manneskja getur í raun og veru gert.
  • Taka aðgang af um leið og starfslok verða, án þess að tapa sögu.

Áður en þú byrjar

  • Aðeins stjórnendur sjá og breyta þessari síðu. Breyta-heimild ein og sér dugar ekki.
  • Það verður alltaf að vera að minnsta kosti einn virkur stjórnandi. Kerfið stöðvar breytingu sem myndi skilja félagið eftir án stjórnanda.
  • Allar breytingar vistast sjálfkrafa og eru skráðar í öryggis-atburði með nafni þess sem gerði þær.

01Hver kemst inn

Aðeins netföng á þessum lista komast inn. Nýtt fólk fær boð með einnota hlekk og velur sitt eigið lykilorð.

  1. Bjóddu nýrri manneskju

    Smelltu á „Nýr notandi“, sláðu inn nafn og netfang og veldu hlutverk. Boðið sendir einnota hlekk og manneskjan velur lykilorðið sitt sjálf. Þú getur límt inn mörg netföng í einu, aðskilin með kommu eða línubili, og boðið fer á hvert þeirra.

    ÁbendingVelkomin-pósturinn ber aldrei lykilorð. Þurfi einhver að fá lykilorð handvirkt notarðu „Setja lykilorð handvirkt“ og lætur það berast eftir öðrum leiðum.

  2. Taktu aðgang af

    Notaðu þrípunktinn hægra megin og veldu „Afvirkja“. Manneskjan kemst ekki lengur inn en öll gögn og saga haldast, og þú getur endurvirkjað hvenær sem er. „Eyða varanlega“ er aðeins fyrir netföng sem áttu aldrei að vera á listanum.

    PassaðuAfvirkjun ógildir líka útistandandi boðshlekki strax, svo enginn geti endurvirkjað sig sjálfur gegnum gamlan hlekk úr pósthólfi.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið