Fara beint í efnið

Telva Tengingarheilsa

Er bókhaldstengingin í lagi, hvenær sótti hún síðast og hvað vantar

Stjórn & stillingarÚtgáfa 1.0 · Uppfært 2. september 2026 · 2 kaflar

Tengingarheilsan svarar einni spurningu: eru tölurnar sem þú sérð ferskar? Hún sýnir hvort tengingin við bókhaldskerfið svarar, hvenær hún sótti síðast, hvaða gögn eru í speglinum og hvað vantar. Uppsetning tengingarinnar sjálfrar er annars staðar; þetta er vöktunin.

Til hvers

  • Sjá hvort tengingin er upp eða niðri áður en þú trúir tölu.
  • Vita hvenær gögnin voru síðast sótt.
  • Finna hvað vantar þegar tala lítur undarlega út.

Áður en þú byrjar

  • Tengingin þarf að hafa verið sett upp. Sé hún ekki til stendur það á síðunni.
  • Hver tenging tilheyrir sínu félagi. Þú sérð aðeins þína eigin.

01Staða tengingarinnar

  1. Lestu stöðuna

    Grænt þýðir að kerfið svaraði síðast þegar reynt var. Rautt þýðir að það svaraði ekki, og þá er tíminn frá síðustu heppnuðu sókn það sem skiptir máli.

  2. Skoðaðu söguna

    Sagan sýnir keyrslurnar og hvað kom út úr þeim. Endurtekin bilun á sama tíma dags á sér yfirleitt skýringu í kerfinu hinum megin.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.