Fara beint í efnið

Telva Endurskoðendagátt

Tímabundinn og afturkallanlegur les-aðgangur að bókhaldsgögnum

FjármálÚtgáfa 1.0 · Uppfært 2. september 2026 · 3 kaflar

Endurskoðendagáttin veitir endurskoðanda eða bókara aðgang að bókhaldsgögnum félagsins í ákveðinn tíma, án þess að nokkur lykill skipti um hendur. Þú býrð til hlekk, velur tímabil og gildistíma, og sérð svo nákvæmlega hvað var skoðað og hvenær. Aðgangurinn er aðeins lestur og hann er afturkallanlegur hvenær sem er.

Til hvers

  • Afhenda endurskoðanda gögn án þess að senda skrár í tölvupósti.
  • Gefa aðgang sem rennur sjálfur út í stað þess að muna eftir að loka honum.
  • Sjá hver sótti hvað og hvenær, svart á hvítu.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft heimild til að veita aðgang að fjárhagsgögnum félagsins.
  • Hafðu tímabilið sem endurskoðunin nær yfir á hreinu áður en þú býrð hlekkinn til.

01Að veita aðgang

  1. Búðu til aðganginn

    Skráðu nafn stofunnar, tilgang og tímabilið sem aðgangurinn nær yfir, og veldu hve lengi hann gildir. Kerfið býr til hlekk sem enginn getur giskað á.

    ÁbendingVeldu stofuna af listanum þegar hún er þar. Þá er tengingin skráð beint í stað þess að vera lesin úr nafninu.

  2. Sendu hlekkinn

    Hlekkurinn opnar gáttina án innskráningar og sýnir aðeins gögn þessa félags og þessa tímabils.

    PassaðuHlekkurinn er lykillinn. Sendu hann á þann sem á að fá aðganginn og hvergi annað.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.