Fara beint í efnið
Handbækur
Fjármál

Stofan · aðgangar og viðskiptavinir

Vinnusvæði endurskoðunarstofu: viðskiptavinasafnið, aðgangar að gögnum þeirra og hlekkir fyrir ytri aðila

Útgáfa 1.0Uppfært 3. september 20265 kaflar

Stofa sem þjónustar mörg félög vinnur hér. Viðskiptavinasafnið sýnir félögin sem stofan hefur virkan aðgang að, og af hverju þeirra opnast vinnusvæði með endurskoðunargögnum þess: hreyfingum, færslurýni, flöggum og drögum að rekstrar- og efnahagsreikningi. Aðgangssíðan heldur utan um aðgangana sjálfa: hverjir eru virkir, hvenær þeir renna út og hvaða hlekkir hafa verið gefnir út til ytri aðila.

Til hvers

  • Sjá öll félög sem stofan hefur aðgang að á einum stað.
  • Opna gögn viðskiptavinar inni í kerfinu í stað þess að fá skjöl send.
  • Búa til tímabundinn hlekk fyrir ytri aðila sem þarf að sjá afmörkuð gögn.
  • Framlengja eða afturkalla aðgang án þess að bíða eftir neinum.
  • Bjóða nýju félagi í innleiðingu og fylgja henni eftir.

Áður en þú byrjar

  • Aðgangur að gögnum félags byggir á virkri heimild frá því félagi. Renni hún út lokast vinnusvæðið sjálfkrafa.
  • Vinnusvæðið er lestur eingöngu. Þaðan er engu breytt í bókhaldi viðskiptavinarins.

01Vinnusvæði viðskiptavinar

  1. Opnaðu félagið

    Í viðskiptavinasafninu smellirðu á „Opna“ og gögn félagsins birtast inni í kerfinu, í fullu útliti og án þess að þú þurfir sérstakan glugga eða sérstaka innskráningu.

  2. Veldu tímabil

    Tímabilsvalið stýrir öllu á svæðinu: hreyfingum, veltu, flöggum og samanburði við fyrra ár. Gögnin eru sótt mánuð fyrir mánuð, svo löng tímabil taka lengri tíma en þau springa ekki.

  3. Lestu greininguna

    Svæðið sýnir veltu á tímabilinu, framlegð, aldur krafna og skulda, og flögguð atriði: stórar færslur, tvíteknar færslur, sléttar fjárhæðir, helgar-bókanir og frávik frá væntu mynstri.

  4. Kafaðu í lykil

    Þú getur opnað hreyfingar einstaks lykils og látið draga þær saman í orðum. Fylgiskjalið sjálft er opnað við hlið hreyfingarinnar.

  5. Merktu stöðu

    Hvert atriði fær stöðu: beðið, í greiningu, á ekki við eða lokið. Þannig sést hvað er afgreitt og hvað bíður, án þess að halda sérlista.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið