Fara beint í efnið

Telva Gæðamál

Daglegt eftirlit, frávik, þrif og allt sem eftirlitsmaður biður um, á einum stað

Gæði & öryggiÚtgáfa 2.1 · Uppfært 3. september 2026 · 14 kaflar

Telva Gæðamál heldur utan um daglegt eftirlit í vinnslunni og sannar það fyrir eftirlitsmanni. Gæðavaktin sýnir hvað er ógert núna og hvar frávikin liggja, spjaldtölvan á gólfinu tekur við skráningunni með starfsmannakorti í stað fellilista, og eftirlitsmappan safnar tímabilinu saman í eitt blað sem má leggja fram. Ofan á það liggja mörkin sem gera mælingu að reglu, tíðnin sem býr til verkin, þrifaplanið, stýrðu skjölin með skránum sjálfum, næringin, lokanirnar og sýnatakan. Sagan úr gamla kerfinu er flutt inn með sínum eigin dagsetningum, svo tvö ár aftur í tímann standi í Telvu en ekki í kerfi sem er búið að segja upp.

Til hvers

  • Sjá á Gæðavaktinni hvað er farið fram yfir, hvað bíður og hvaða frávik eru opin, deild fyrir deild.
  • Afgreiða frávik með öllu samhengi: hvaða tala fór út fyrir, hvaða mörk giltu, hver skráði og hvað hann gerði.
  • Setja mörk á mælingar svo þær myndi frávik sjálfar í stað þess að vera hjálpartexti.
  • Setja kerfið upp frá grunni: deildir, möppur, eftirlit, tíðni og starfsmannakortin.
  • Láta starfsfólk skrá á gólfinu með korti, þar sem nafnið á skráningunni er undirskrift en ekki val úr lista.
  • Halda utan um þrifin sem eina lotu fyrir hvert svæði og hverja vakt, í stað fjörutíu og fimm aðskilinna verka.
  • Afhenda eftirlitsmanni tímabilið sem eina möppu, með ógerðu verkunum líka, á skjá, í PDF eða sem skrá.
  • Halda stýrðum skjölum (HACCP) með útgáfu, ábyrgð og yfirferðar-fresti, og geyma skrárnar sjálfar í Telvu.
  • Halda utan um næringargildi og innihaldslýsingar, setja vörur eða lotur í lokun og skrá sýni.
  • Flytja inn eldri skráningar úr gamla kerfinu með þeirra eigin dagsetningum.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft að skrá þig inn í Telvu með aðgang að gæðamálum.
  • Nýtt félag byrjar á Uppsetningu. Án deilda, eftirlita og tíðni myndar kerfið engin verk og vaktin stendur auð.
  • Skráning ber nafn af starfsmannakorti, svo að minnsta kosti eitt kort þarf að vera skráð áður en spjaldtölvan opnast.
  • Næring, lokanir og sýni byggja á vörum og gögnum úr Business Central, þú vinnur ofan á þeim.

01Yfirlitið

Fyrsti flipinn er stjórnborðið. Þaðan sérðu stöðuna og kemst inn í hvert svæði.

  1. Opnaðu Gæðamál & öryggi

    Opnaðu Gæðamál í valmyndinni. Yfirlitið dregur saman næringu (staðfest, tengt og drög), virkar lokanir, sýni (bíða eða féllu) og skjöl (í gildi eða til endurskoðunar) í rauntíma.

  2. Fylgdu athygli-ræmunni

    Efst er ræma sem lýsir upp það sem þarf athygli, gult eða rautt, með tengli beint á málið. Byrjaðu þar, þá veistu alltaf hvað liggur á.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.