Innkaupagreining
Hvert fer eyðslan? Heildar-innkaup, stærstu birgjar, mánaðar-þróun, vöru-sundurliðun og samþjöppun · beint úr vörulínum reikninganna
Útgáfa 2.1Uppfært 18. júlí 20265 kaflar
Innkaupagreining sýnir hvert innkaupin þín renna. Í stað þess að fletta gegnum hvern reikning færðu heildarmyndina: hversu miklu var eytt á tímabilinu, hjá hvaða birgjum, í hvaða vörur, hvernig eyðslan þróaðist mánuð fyrir mánuð og hversu samþjöppuð hún er hjá fáum birgjum. Tölurnar eru dregnar beint úr vörulínum innkaupareikninganna · sömu línur og Verðvaktin les. Allt er án VSK og hópað eftir mynt, svo þú berð saman epli við epli.
Til hvers
- Sjá heildar-eyðslu innkaupa á völdu tímabili, með samanburði við sama tímabil árið áður.
- Finna stærstu birgjana og hlutdeild hvers þeirra í heildinni.
- Sjá í hvaða vörur peningarnir fara (vöru-sundurliðun úr línunum).
- Fylgjast með mánaðar-þróun: hvenær eyðslan toppaði og hvenær hún datt niður.
- Meta samþjöppun: hversu háð þú ert fáum birgjum (hlutfall þriggja stærstu).
- Sjá hvaða birgjar uxu mest og hverjir drógust saman milli tímabila.
Áður en þú byrjar
- Innkaupagreining er viðbót (add-on) sem kveikt er á fyrir hvert félag í Telva Stjórn · sjálfgefið er hún slökkt. Auk þess veitir stjórnandi hana völdum notendum með eigin aðgangs-svæði í Notendum, svo aðeins þau sem eiga að sjá eyðsluna komist í hana.
- Reikningarnir þurfa að vera komnir inn: úr Business Central beint, úr dk gegnum rafræn skeyti (UBL), eða úr samþykktum móttökum í öðrum kerfum.
01Staðfestur sparnaður · pottarnir þrír
Efst á borðinu er staðfestur sparnaður: hvað innkaupavinnan skilaði í krónum á tímabilinu. Hann er byggður úr þremur aðgreindum pottum, hver með sinni heimild. Þeir eru aldrei blandaðir og aldrei summaðir þvert á myntir · heildartalan er alltaf hægt að rekja í pottana þrjá fyrir neðan hana.
Afstýrðar hækkanir
Kemur úr Verðvaktinni. Þegar mál leysist (samið um afslátt, verð leiðrétt, kreditnóta móttekin, samningur endurskoðaður) og þú skráir niðurstöðuna, telst sparnaðurinn hér. Kortið sýnir hver leysti hvaða mál og hve mikið það skilaði. Afstýrðar hækkanir skráast í krónum (ISK) við lokun málsins og fara því alltaf í ISK-samtöluna, óháð mynt undirliggjandi reiknings.
ÁbendingMál sem enda á „skýringu“ eða þar sem „hækkun stendur“ skila engum beinum sparnaði og telja því ekki með · aðeins raunverulega afstýrðar hækkanir.
Verðlækkanir sem skiluðu sér
Þegar verð vöru lækkar undir sögulegt meðaltal (grunnlínu) reiknar borðið raun-sparnaðinn: fyrir hvern mánuð eftir lækkun margföldum við raun-magnið sem keypt var þann mánuð með mismuninum á grunnlínu og nýja verðinu. Aðeins raun-magn hvers mánaðar er notað · aldrei árs-áætlun.
ÁbendingSömu varnir og Verðvaktin: aðeins verð án VSK með vissu, sama vara borin saman við sjálfa sig, og sub-krónu gjöld sniðgengin svo rúnnun búi ekki til gervi-sparnað.
Birgjaskipti
Þegar vara færist frá einum birgja til annars á lægra verði reiknar borðið sparnaðinn: mismunur á vegnu meðaleiningaverði gamla birgis fyrir skiptin og FYRSTA stöðuga verði nýja birgis (verðinu sem samið var um við skiptin), margfaldaður með raun-magninu sem keypt var af nýja birgjanum. Færist vara á HÆRRA verði birtist það líka, með rauðu („dýrara eftir skipti“) · heiðarlega, en telur ekki í sparnaðinn.
ÁbendingSkiptasparnaðurinn miðast við fyrsta verð nýja birgis, ekki meðaltal alls tímabilsins. Lækki nýi birgir verð sitt SÍÐAR telst sú lækkun sem verðlækkun (potturinn hér að ofan), ekki tvisvar · og hækki hann síðar étur það ekki skiptin afturvirkt (Verðvaktin flaggar hækkunina sérstaklega). Þannig telur hver króna aðeins einu sinni.
„Nákvæmt“ og „áætlað“ á birgjaskiptum
Ber varan sama vörunúmer (Item) hjá báðum birgjum með sömu mælieiningu er samsvörunin NÁKVÆM · sama vara, sannreynd. Eru línurnar bókaðar á fjárhagslykil (Account) án vörunúmers parast þær á lýsingu og mælieiningu og eru merktar „áætlað“, því lýsingar geta verið misvísandi. Ólík mælieining stöðvar alltaf pörun (verð á kg og á kassa eru ekki samanburðarhæf). Í samantektinni sérðu „þar af áætlað X kr“ svo þú vitir hve stór hluti birgjaskipta-sparnaðarins hvílir á áætlaðri pörun frekar en sannreyndri.
PassaðuÁætluð birgjaskipti eru vísbending, ekki sönnun. Notaðu þau til að finna tilefni, en staðfestu stóru tölurnar á reikningunum sjálfum.
Segðu okkur hver er að lesa
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.