Fara beint í efnið

Telva Lagergreining

Sjá hvar peningarnir liggja í birgðunum og hvað er að eldast

VöruhúsÚtgáfa 2.0 · Uppfært 2. september 2026 · 10 kaflar

Lagergreiningin svarar þremur spurningum sem skipta stjórnendur mestu: Hvað eru birgðirnar að verða mikils virði yfir tíma? Hvar liggja peningar fastir í vörum sem hreyfast ekki (fjárbinding)? Og hvaða lotur eru að eldast og þarf að nota fyrst? Allt er reiknað sjálfkrafa á hverri nóttu úr bókhaldskerfinu og birt á einni síðu undir Vörur og lager.

Til hvers

  • Sjá heildarverðmæti birgða þróast dag frá degi, bæði á kostnaðar- og söluverði.
  • Finna fjárbindingu · vörur sem eru til á lager en hafa ekki hreyfst út lengi.
  • Sjá hvaða lotur eru elstar svo hægt sé að nota þær fyrst (fyrstur inn, fyrstur út).
  • Bera saman lofaðan afhendingartíma birgja við þann raunverulega sem mælist úr móttökum.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft að skrá þig inn í Telvu og félagið að vera með Vörur og lager.
  • Greiningin fyllist smám saman: verðmæta-línan þarf tvo daga til að teiknast, og hún lengist um einn punkt á dag.
  • Opnaðu Vörur og lager og veldu flipann „Greining“.

01Þrír flipar á einni síðu

Greiningin skiptist í þrjá hluta sem þú velur efst á síðunni. Talan á flipa (rauð eða gul) sýnir hversu margt kallar á athygli.

  1. Verðmætaþróun

    Heildarverðmæti birgða yfir tíma. Þú getur skipt milli kostnaðarverðmætis (hvað birgðirnar kostuðu þig) og söluverðmætis (hvað þær eru verðlagðar á).

  2. Fjárbinding

    Vörur sem eru til á lager en hreyfast ekki út. Talan á flipanum sýnir hve margar vörur eru komnar yfir 90 daga án hreyfingar.

  3. Lotu-aldur

    Elstu lotur í vöruhúsinu og aðvörun þegar lota nálgast geymsluþol (eða fer yfir aldursviðmið ef þol vantar). Talan sýnir fjölda lota sem kalla á athygli.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.