Fara beint í efnið

Launakostnaður

Laun og launatengd gjöld sem hlutfall af sölu, mánuð fyrir mánuð, leidd beint úr höfuðbók

FjármálÚtgáfa 1.0 · Uppfært 3. september 2026 · 3 kaflar

Launakostnaður svarar einni spurningu: hversu stór hluti af sölunni fer í laun? Talan er reiknuð beint úr höfuðbók bókhaldsins, ekki úr launakerfinu og ekki úr áætlun, svo hún er sannreynanleg í bókhaldinu hvenær sem er. Línuritið sýnir mánuð fyrir mánuð og ber saman við fyrra ár.

Til hvers

  • Sjá laun tímabilsins og sölu tímabilsins hlið við hlið.
  • Sjá hlutfallið milli þeirra og hvernig það þróast milli mánaða.
  • Bera árið saman við fyrra ár á sama grunni.
  • Prenta eða vista yfirlitið sem PDF fyrir stjórnarfund.

Áður en þú byrjar

  • Launin þurfa að vera bókuð í höfuðbók. Ógreiddur eða óbókaður mánuður er ekki með.
  • Skilgreiningin á því hvaða lyklar teljast laun er læst. Það er viljandi svo talan sé alltaf reiknuð eins.

01Hvað er í tölunni

  1. Laun og launatengd gjöld

    Launatalan er summa launalykla og launatengdra gjalda úr höfuðbók. Bæði eru talin, því launatengd gjöld eru raunverulegur kostnaður félagsins af fólkinu.

  2. Tekjugrunnurinn

    Salan sem deilt er í er nettósala samkvæmt bókhaldi, sama grunntala og rekstrarreikningurinn notar. Þannig stemmir hlutfallið við uppgjörið.

  3. Hlutfallið sjálft

    Hlutfallið er laun deilt með sölu, hvort tveggja nettó úr bókhaldi. Ein tala, ein skilgreining, sama regla í öllum mánuðum.

    ÁbendingSmelltu á skilgreininguna til að sjá nákvæmlega hvaða lyklabil eru talin. Hún er læst en hún er ekki leyndarmál.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.