Fara beint í efnið
Handbækur
Sala & markaður

Telva Pantanakerfi

Verslanir panta sjálfar · þú samþykkir og rekur

Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20265 kaflar

Telva Pantanakerfi gefur viðskiptavinum þínum sína eigin pöntunarsíðu. Verslunin fær hlekk, opnar hann í símanum án innskráningar, sér nákvæmlega þær vörur sem þú hefur valið handa henni og sín eigin verð, og sendir pöntun. Pöntunin lendir hjá þér sem DRÖG og fer hvergi lengra fyrr en starfsmaður samþykkir hana. Þá, og aðeins þá, fer hún í bókhaldskerfið, nákvæmlega sömu leið og pöntun sem starfsmaður skráir sjálfur. Verslunin rekur svo stöðuna alla leið í „Útskipuð“ í sama hlekk og hún pantaði í.

Til hvers

  • Losna við pantanir í tölvupósti, SMS og símtölum sem enginn heldur utan um.
  • Láta verslunina sjá RÉTTAN vörulista og RÉTT verð, í stað þess að panta upp úr gömlum lista.
  • Hafa eitt borð yfir allt sem bíður svörunar, með sögu yfir það sem er afgreitt.
  • Gefa versluninni svar um stöðuna án þess að nokkur þurfi að hringja.

Áður en þú byrjar

  • Félagið þarf eininguna „Telva Pantanakerfi“ virka. Hún er seld viðbót og er kveikt í Telva Stjórn.
  • Þú þarft svæðið „Pantanir & rakning“ hakað á þig í Notendur.
  • Til að SAMÞYKKJA pöntun þarftu vinnuheimild (má breyta). Að skoða borðið krefst hennar ekki.
  • Viðskiptavinurinn og verslunin (afhendingarstaður) þurfa að vera til í bókhaldskerfinu. Hlekkurinn er búinn til á þeim, ekki á netfangi.

01Pöntunarhlekkir

Hlekkurinn er lykillinn að gáttinni. Hann er búinn til á tiltekinn kaupanda og gildir þar til hann rennur út.

  1. Veldu kaupanda og ham

    Hlekkur er annaðhvort í KEÐJU-ham eða VERSLUNAR-ham. Keðjuhamur gefur einn hlekk á allan viðskiptavininn og verslunin velur sig sjálf þegar hún opnar hann. Verslunarhamur bindur hlekkinn við eina verslun, sem hentar þegar hver búð á að hafa sinn eigin.

    ÁbendingKeðjuhamur er oftast réttur fyrir stórar keðjur: einn hlekkur á innkaupastjórann sem pantar fyrir margar búðir.

  2. Ákveddu hvort verð sjáist

    Hver hlekkur ber hak um hvort verð birtist í gáttinni. Sé það af sér verslunin vörurnar og pantar magn, en engin verð. Sé það á leysir gáttin verðin server-megin fyrir ÞENNAN kaupanda · sérkjörin hans, ekki almennan verðlista.

    PassaðuVerð eru leyst á þjóninum og aldrei reiknuð í símanum. Kostnaðarverð og álagning koma hvergi nærri gáttinni.

  3. Stilltu líftímann

    Hlekkurinn gildir í 365 daga sjálfgefið. Þú mátt stilla hann á allt frá einum degi upp í 730 daga. Útrunninn hlekkur svarar nákvæmlega eins og hlekkur sem er ekki til, svo hann afhjúpar aldrei að hann hafi verið til.

  4. Sendu hann eða prentaðu QR-kóðann

    Hver hlekkur ber QR-kóða sem má prenta og hengja upp í versluninni. Starfsfólk skannar hann og er komið beint í pöntunina. Slóðin sjálf virkar líka ein og sér í tölvupósti.

    ÁbendingQR-kóðinn á kæliskápnum er oft fljótlegri en hlekkur í pósti sem enginn finnur aftur.

  5. Fylgstu með sporinu

    Hver hlekkur telur opnanir og pantanir og sýnir fyrsta og síðasta atburð. Hlekkur með margar opnanir en engar pantanir segir þér að eitthvað stöðvi verslunina · oftast vöruvalið.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið