Fara beint í efnið

Telva Peningar

Hver skuldar okkur, hverjum við skuldum og hvernig sjóðstreymið lítur út

FjármálÚtgáfa 2.0 · Uppfært 2. september 2026 · 4 kaflar

Telva Peningar dregur saman peningahlið rekstrarins á einum stað. Þú sérð hverjir skulda okkur (útistandandi), hverjum við skuldum (að borga) og sjóðstreymis-spá sem leggur þetta saman. Allt kemur beint úr bókhaldskerfinu, svo þú þarft ekki að púsla saman skjám eða Excel-skrám.

Til hvers

  • Sjá hverjir skulda okkur og hve mikið, raðað eftir aldri.
  • Sjá hvaða reikninga við þurfum að borga og hvenær.
  • Fá einfalda sjóðstreymis-spá sem leggur saman það sem kemur inn og fer út.
  • Grípa það sem er komið fram yfir eindaga áður en það verður vandamál.

Áður en þú byrjar

  • Þetta svæði sýnir viðkvæm fjárhagsgögn, svo aðgangur er sér-stýrður.
  • Tölurnar koma úr bókhaldskerfinu og eru sannreynanlegar þar.

01Athygli núna

Efst á síðunni stendur það sem þarf viðbragð í dag, ekki heildarmyndin. Þar er lægsta væntanlega sjóðsstaða næstu vikna, elsta krafan sem er enn ógreidd og hve stór hluti útistandandi hangir á þremur stærstu viðskiptavinunum.

  1. Bankastaða dagsins

    Sjóðstreymis-spáin þarf upphafspunkt. Sláðu inn stöðuna eins og hún er í bankanum í dag og spáin reiknast frá henni. Talan vistast og þú þarft aðeins að uppfæra hana þegar þér hentar.

    ÁbendingÁn bankastöðu sýnir spáin aðeins hreyfinguna, ekki hvar þú lendir. Ein tala einu sinni í viku gefur henni merkingu.

  2. Lægsta sjóðsstaða

    Spáin sýnir ekki bara endastöðuna heldur LÆGSTA punktinn á leiðinni. Það er talan sem segir hvort þú kemst í gegnum mánuðinn, því staða sem endar í plús getur samt farið í mínus í miðjum mánuði.

  3. Samþjöppun · þrír stærstu

    Hlutfall útistandandi sem hangir á þremur stærstu viðskiptavinunum. Há samþjöppun þýðir að ein greiðsla sem seinkar hreyfir alla stöðuna.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.