Telva Reikningagerð
Sölureikningur á innan við mínútu, í vörumerki félagsins
Útgáfa 3.1Uppfært 4. september 20267 kaflar
Telva Reikningagerð býr til sölureikninga sem standast íslensk lög og bera vörumerki félagsins þíns. Þú velur viðskiptavin, leitar að vöru inni í línunni sjálfri, slærð inn magn og afslátt, og sérð reikninginn verða til hægra megin á skjánum um leið og þú skrifar. Reikningurinn verður til í Telvu og er löglegur þar, óháð því hvaða bókhaldskerfi félagið notar. Drög má breyta að vild, en um leið og þú gefur reikninginn út fær hann númer, myndar fjárhagsfærslu og verður frystur: honum verður hvorki breytt né eytt eftir það. Það er ekki hönnunarval heldur krafa reglugerðar nr. 505/2013, og eina leiðin til baka er kreditreikningur.
Til hvers
- Gefa út löglegan sölureikning á innan við mínútu, líka í síma
- Sjá reikninginn eins og hann fer út, í lit og með lógói félagsins, um leið og þú skrifar
- Leita að vöru eftir númeri eða heiti inni í línunni og velja með Enter
- Setja afslátt á hverja línu og halda VSK réttum á þrepum
- Sækja reikninginn sem A4-PDF eða senda hann áfram
- Kreditfæra reikning sem var rangur, með ástæðu sem varðveitist
Áður en þú byrjar
- Þú þarft aðgang að svæðinu „Telva Reikningagerð“ (stillt í Notendum)
- Til að GEFA ÚT reikning þarftu hættuheimildina „Bókhald“ · drög má hver sem er með breyta-heimild búa til
- Viðskiptavinurinn þarf að vera til í viðskiptavinaskránni
- Félagið þarf VSK-kóða · þeir eru settir upp sjálfkrafa við fyrstu heimsókn
- Greiðsluupplýsingar og skilmálar eru skráð einu sinni undir Reikningagerð › Stillingar
01Búa til reikning
Ritillinn er vinstra megin og forsýnin hægra megin. Allt sem þú slærð inn birtist strax í forsýninni, svo þú þarft aldrei að prenta til að sjá hvernig reikningurinn lítur út.
Veldu viðskiptavin
Skrifaðu nafn eða kennitölu í leitarreitinn og veldu úr listanum. Gjalddaginn stillist sjálfkrafa eftir greiðslufresti viðskiptavinarins, en þú mátt alltaf breyta honum.
ÁbendingKennitalan finnst hvort sem þú slærð hana með bandstriki eða án. Sniðið ræður aldrei niðurstöðunni.
Bættu við vörulínum
Sláðu vörunúmer eða heiti í fyrsta reitinn í línunni. Listi opnast undir og þú ferð um hann með örvunum upp og niður og velur með Enter. Lýsing, verð og VSK-þrep fyllast sjálf og þú mátt breyta þeim öllum.
ÁbendingÞú þarft aldrei að fara af lyklaborðinu. Örvarnar velja, Enter staðfestir og Tab fer í næsta reit.
Settu afslátt þar sem hann á við
Afsláttur er sleginn í prósentum á hverja línu. Nettó og VSK reiknast af verðinu eftir afslátt, og forsýnin sýnir einingaverðið eins og kaupandinn sér það.
Notaðu textalínur fyrir skýringar
Textalína ber enga upphæð og hentar fyrir millifyrirsagnir eða skýringu sem á að standa á reikningnum. Hún telst ekki með í samtölunum.
Vistaðu drögin
Smelltu á „Vista drög“. Drögin fá ekkert númer og hafa engin fjárhagsáhrif. Þeim má breyta eins oft og þú vilt, og þeim má henda.
PassaðuTalan í ritlinum er forskoðun. Endanlega talan er reiknuð í grunninum við vistun, og hún er sú sem gildir.
Segðu okkur hver er að lesa
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.