Fara beint í efnið
Handbækur
Fjármál

Telva Reikningamóttaka

Innhólf innkaupareikninga: rafræn skeyti og PDF lesin línu fyrir línu, yfirfarin og send áfram

Útgáfa 1.0Uppfært 3. september 20264 kaflar

Reikningamóttakan er innhólfið fyrir reikninga frá birgjum. Rafræn skeyti (UBL eða PEPPOL) les Telva beint. PDF les hún með gervigreind, líka skannaða reikninga, og skilar hverri línu með vörunúmeri, magni og einingaverði. Þú yfirferð það sem kom út, lagar það sem þarf og sendir reikninginn áfram: annaðhvort í samþykktarferlið eða sem drög í bókhaldskerfið. Ekkert bókast sjálfkrafa.

Til hvers

  • Taka við reikningum frá birgjum á einum stað í stað þess að þeir liggi í pósthólfum.
  • Láta Telvu lesa reikninginn línu fyrir línu í stað þess að slá hann inn.
  • Sjá strax hvort verð hafi hækkað frá síðasta reikningi sama birgis.
  • Yfirfara og senda í samþykkt, eða stofna drög beint í bókhaldskerfinu.
  • Halda frumritinu með reikningnum svo það týnist ekki.

Áður en þú byrjar

  • Skjalið þarf að vera PDF eða rafrænt skeyti (UBL eða PEPPOL) og ekki stærra en fjórar megabæti.
  • Birginn þarf að vera til í bókhaldskerfinu til að hægt sé að stofna reikninginn þar. Móttaka og yfirferð virka þótt birginn sé nýr.
  • Sé félagið í prufuham stendur það efst og þá er ekkert skrifað í bókhaldskerfið, sama hvað þú gerir.

01Svona fer reikningurinn í móttöku

  1. Dragðu reikninginn inn

    Dragðu skjalið í reitinn eða veldu það af tölvunni. Rafrænt skeyti er lesið beint og þá stendur „Telva las það beint“. PDF fer í gegnum lesturinn.

  2. Láttu Telvu lesa reikninginn

    „Lesa með Telvu“ les hverja línu, líka af skönnuðum reikningi. Það tekur oftast fimmtán til fjörutíu sekúndur, því hver lína er lesin sér en ekki heildin ágiskuð.

    ÁbendingSé skráin mjög stór eða óskýr tekur lesturinn lengri tíma. Minni eða skýrari skrá skilar betri niðurstöðu.

  3. Veldu birgja

    Telva stingur upp á birgja út frá nafni, kennitölu eða númeri á reikningnum. Þekktur birgir er merktur sem slíkur og nýr birgir sömuleiðis, svo þú vitir hvort þú ert að stofna nýtt samband.

  4. Yfirfarðu línurnar

    Berðu saman samtölu línanna (án VSK) og heildina á frumritinu. Standist þær á stendur „Tölur stemma“; annars sérðu mismuninn og hvaða lína veldur honum.

    PassaðuReikningur sem stemmir ekki á ekki að fara áfram. Lagaðu línuna eða opnaðu frumritið og skráðu handvirkt.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið