Fara beint í efnið
Handbækur
Fjármál

Telva Rekstur

Bókhaldið sjálft í Telvu: reikningar, útgjöld, færslubók og VSK

Útgáfa 1.0Uppfært 2. september 20264 kaflar

Telva Rekstur er bókhaldið sjálft fyrir félög sem vilja ekki reka sérstakt bókhaldskerfi við hliðina. Sölureikningar, viðskiptavinir, vörur, útgjöld, tvíhliða færslubók, lyklaskrá og VSK-uppgjör búa á einum stað og tala saman. Það sem þú bókar hér er það sem birtist í rekstraryfirlitinu.

Til hvers

  • Gefa út sölureikning og fylgja honum eftir þar til hann er greiddur.
  • Skrá útgjöld með innskatti og fá VSK-uppgjörið reiknað.
  • Halda tvíhliða bókhald þar sem hver færsla er í jafnvægi.

Áður en þú byrjar

  • Félagsupplýsingar, kennitala og bankaupplýsingar þurfa að vera skráðar svo reikningar séu réttir.
  • Lyklaskráin kemur uppsett. Þú getur bætt við lyklum en þarft þess ekki til að byrja.

01Sala og innheimta

  1. Gefðu út reikning

    Veldu viðskiptavin, settu inn línur úr vöruskránni og gefðu reikninginn út. Hann bókast um leið og hann fer út, í vörumerki félagsins.

  2. Fylgstu með útistandandi

    Aldursgreiningin sýnir hvað er komið fram yfir gjalddaga. Áminningar fara aðeins út þegar þú staðfestir þær.

    PassaðuEkkert er sent sjálfkrafa út úr húsi. Sendingin er alltaf þitt val.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið