Samhengispóstur
Pósturinn þinn þar sem hann á heima: hjá gögnunum
Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20264 kaflar
Samhengispóstur sýnir þína eigin tölvupósta við mótaðila beint á síðunni sem þeir tilheyra, til dæmis póstana þína við birgi á birgjaspjaldinu. Hver notandi tengir sinn Microsoft-reikning með einum smelli og sér aðeins sitt eigið pósthólf. Þú getur líka sent póst í þínu nafni beint úr Stjórnstöð.
Til hvers
- Sjá strax öll samskipti þín við birgi þegar þú skoðar birgjaspjaldið
- Senda póst á birgi beint úr flæðinu, sendist úr þínu pósthólfi og situr í Sent hjá þér
- Hver sér bara sitt: samstarfsfólkið sér sína pósta, þú þína
Áður en þú byrjar
- Þú þarft Microsoft-reikning fyrirtækisins (sama innskráning og í Outlook og Teams)
- Tengingin er valfrjáls og þú getur aftengt hvenær sem er í Mín stilling
01Tengja pósthólfið
Stillingar → Póst-tenglar
Efst í kortinu „Microsoft-reikningurinn minn“ smellirðu á „Tengja með einum smelli“. Þú ferð yfir til Microsoft, velur reikninginn þinn og kemur sjálfkrafa til baka.
ÁbendingÞú þarft ekki að samþykkja nein leyfi sjálf(ur), fyrirtækið hefur þegar samþykkt þau fyrir alla.
Staðfesting
Þegar tengingin tekst birtist grænt hak með nafninu þínu og póstarnir þínir birtast strax í samhengi.
Segðu okkur hver er að lesa
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.