Fara beint í efnið

Telva Samþykktir

Samþykktu móttekna reikninga Telvu-megin: skýrt hver samþykkti hvað, og Verðvaktin fylgist með verðinu

Fjármál & innkaupÚtgáfa 2.0 · Uppfært 2. september 2026 · 7 kaflar

Reikningar sem þú lest inn í Reikningamóttökuna bíða hér samþykktar. Þú sérð birgjann, upphæðina og vörulínurnar, flettir út, skoðar frumritið og samþykkir eða hafnar með einum smelli. Samþykktin er Telvu-megin: hún skráist strax og fæðir Verðvaktina, en hún bókar ekkert í bókhaldskerfið þitt. Bókhaldskerfið er áfram bók reikninganna · Telva heldur utan um samþykktarferlið og verðgátunina.

Til hvers

  • Sjá alla móttekna reikninga sem bíða samþykktar, með vörulínum og heild.
  • Fletta út og bera línurnar saman við frumritið áður en þú afgreiðir.
  • Sjá strax hvaða línur hækkuðu yfir sögulegt miðverð (Verðvakt-flögg).
  • Samþykkja eða hafna með einum smelli · það skráist samstundis.
  • Halda skýru yfirliti: hver samþykkti hvað og hvenær.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft að skrá þig inn í Telvu með aðgang að Samþykktum.
  • Reikningarnir koma úr Reikningamóttökunni: dregðu inn PDF eða rafrænt skeyti, Telva les það og vistar í móttöku.

01Hvað „samþykkja“ þýðir hér

Mikilvægt að hafa á hreinu: samþykkt Telvu-megin er ekki bókun. Skuldabókhaldið á að vera skýrt.

  1. Samþykkt merkist í Telvu

    Þegar þú samþykkir færist reikningurinn úr „bíða samþykktar“ í „afgreitt“ og hverfur af listanum. Það er skráð hver samþykkti og hvenær, svo allt sé rekjanlegt.

  2. Samþykkt fæðir Verðvaktina

    Vörulínurnar (magn og einingaverð) fara inn í Verðvaktina þegar reikningur er samþykktur. Þannig lærir Telva verðsögu birgjanna og getur flaggað hækkanir framvegis.

    ÁbendingAðeins samþykktir reikningar fæða verðsöguna. Hafnaðir eða bíðandi reikningar mengast ekki inn í grunnlínuna.

  3. Samþykkt bókar EKKERT í bókhaldskerfið

    Telva skrifar aldrei í dk eða Reglu. Bókhaldskerfið er áfram bók reikninganna: þar bókast reikningurinn og þar myndast skuldin við birgjann. Telva heldur utan um samþykktarferlið og verðgátunina, ekkert annað.

    PassaðuAð samþykkja hér greiðir ekki reikninginn og stofnar hann ekki í bókhaldinu. Sjáðu til þess að reikningurinn sé líka færður í bókhaldskerfinu eins og venjulega.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.