Fara beint í efnið
Handbækur
Gæði & öryggi

Skjalastýring

Gæðaskjölin í gildi: útgáfunúmer, ábyrgðarmaður, yfirferðarfrestur og tengill á skjalið sjálft

Útgáfa 1.0Uppfært 3. september 20263 kaflar

Skjalastýringin heldur utan um gæðaskjölin: hvaða skjöl eru í gildi, hver ber ábyrgð á hverju, hvenær þau voru síðast yfirfarin og hvenær á að fara yfir þau næst. Hún geymir ekki skjalið sjálft heldur skráninguna á því og tengil á það, svo allt sé á einum stað án þess að tvö eintök verði til af sama skjali.

Til hvers

  • Sjá í einni sýn hvaða gæðaskjöl eru í gildi og hver þeirra er komið á tíma.
  • Vita hver ber ábyrgð á hverju skjali.
  • Halda útgáfusögu: hvaða útgáfa var í gildi hvenær.
  • Komast beint í skjalið sjálft í þeirri þjónustu sem geymir það.
  • Sýna eftirliti að skjölin séu yfirfarin reglulega.

Áður en þú byrjar

  • Skjalið sjálft býr áfram þar sem það er geymt. Hér er skráningin og tengillinn á það.
  • Yfirferðarfrestur ræður því hvenær skjal flaggast til endurskoðunar. Án hans flaggast það aldrei.

01Skrá skjal

  1. Skráðu titil og ábyrgð

    Titillinn er það sem fólk þekkir skjalið undir. Ábyrgðin er hlutverkið sem ber það, til dæmis gæðastjóri, svo skráin standist þótt fólk skipti um störf.

    PassaðuTitil vantar er algengasta stoppið. Skjal án titils er ófinnanlegt í listanum og því er hann skilyrði.

  2. Settu inn tengil á skjalið

    Skráðu slóðina á skjalið sjálft í þeirri þjónustu sem geymir það. Þá er allt á einum stað án þess að afrit verði til.

  3. Hengdu skrá við ef þú vilt

    Þú getur líka hlaðið skránni upp beint. Hún fylgir þá skráningunni og er sótt þaðan.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið