Fara beint í efnið

Telva skjöl & gögn

Skjöl félagsins á einum stað

SamvinnaÚtgáfa 1.4 · Uppfært 21. september 2026 · 4 kaflar

Safnaðu skjölum, myndum og myndböndum í möppur. Veldu hver má skoða, breyta eða stýra aðgangi.

Til hvers

  • Skipuleggja sameiginleg gögn félagsins.
  • Deila með öllu félaginu eða völdum notendum.
  • Sækja eldri útgáfur og sjá breytingasögu.

Áður en þú byrjar

  • Félagið þarf virka viðbót og þú aðgang að Skjölum og gögnum.
  • Til að hlaða upp þarftu breytingarheimild. Að setja í rusl krefst einnig eyðingarheimildar.

01Möppur og upphal

  1. Stofnaðu möppu

    Veldu Ný mappa og skrifaðu heiti. Ný rótarmappa er einka. Undirmöppur og skrár inni í möppu erfa aðgang hennar.

  2. Hladdu upp efni

    Veldu Hlaða upp fyrir skrár eða Hlaða upp möppu fyrir möppu með innihaldi. Einnig má draga skrár og heilar möppur úr tölvunni inn á svæðið eða beint á möppuspjald. Draga má allt að 1.000 skrár í einu. Hver skrá má vera allt að 1 GB.

  3. Haltu möppuskipulaginu

    Hlaða upp möppu og drag á möppum varðveita möppuslóðir skránna. Tómar möppur fylgja ekki með; þær geturðu stofnað með Ný mappa.

  4. Ef upphal rofnar

    Hafðu síðuna opna og veldu sömu skrár eða möppu aftur. Upphal heldur áfram þar sem það stöðvaðist. Ef þú lokar eða endurhleður síðunni þarftu að byrja nýtt upphal. Veldu þá aðeins skrárnar sem vantar svo þær sem hafa vistast verði ekki tvíteknar.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.