Fara beint í efnið
Handbækur
Sala & markaður

Telva Sölupantanir

Skráðu pöntun á mínútu · pakkar, sérkjör og staða í rauntíma

Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20265 kaflar

Telva Sölupantanir er staðurinn þar sem pöntunin verður til. Þú velur viðskiptavin, slærð inn vörur og magn og sendir. Verðið reiknast sjálfkrafa með sérkjörum þess viðskiptavinar, afhendingarstaðirnir hans birtast strax og pöntunin fer í bókhaldskerfið um leið og hún er send. Vörukörfur sem endurtaka sig má vista sem pakka og setja á næstu pöntun með einum smelli.

Til hvers

  • Skrá pöntun hratt, með réttu verði fyrir hvern viðskiptavin.
  • Endurtaka fastar körfur (gjafakassa, grillkassa) án þess að slá þær inn aftur.
  • Sjá stöðu pantana og hvað viðskiptavinurinn kaupir venjulega.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft að skrá þig inn með aðgang að sölupöntunum og breyta-heimild til að senda.
  • Viðskiptavinir, vörur og sérkjör koma úr bókhaldskerfinu · þau eru ekki slegin inn hér.

01Skrá pöntun

  1. Veldu viðskiptavin

    Leitaðu að nafni eða kennitölu og veldu með Enter. Sérkjörin hans og afhendingarstaðir birtast strax. Finnist viðskiptavinurinn ekki er hægt að stofna hann með kennitölu, nafn og heimilisfang fyllast úr Þjóðskrá.

    ÁbendingPassi leitin aðeins við lokaða viðskiptavini segir Telva það hreint út í stað þess að segja að ekkert hafi fundist.

  2. Bættu vörum á pöntunina

    Skrifaðu vöruheiti eða vörunúmer og ýttu Enter. Þú ferð beint í magnreitinn, annað Enter fer aftur í leitina. Strikamerkjaskanni virkar líka. Verðið kemur sjálfkrafa úr sérkjörum, þú getur breytt því handvirkt á einstökum línum.

  3. Veldu dag og stað og sendu

    Veldu afhendingardag og afhendingarstað hægra megin og sendu pöntunina. Þú sérð samtölu, virðisaukaskatt og sparnað viðskiptavinarins áður en þú sendir.

    PassaðuÍ prufuham vistast pöntunin en fer ekki áfram í dreifikerfið. Skilaboðin neðst við sendingarhnappinn segja hvor hátturinn er virkur.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið