Telva Stofnskjöl býr til útfyllt stofnskjal fyrir vöru í þeirri mynd sem hver verslunarkeðja vill. Þú velur vöru og keðju, og kerfið fyllir út skjalið með réttum upplýsingum úr vöruskránni og merkingunum. Þannig sleppur þú við að slá sömu vöruna inn aftur og aftur í ólík eyðublöð.
Til hvers
- Búa til stofnskjal fyrir vöru án þess að slá allt inn handvirkt.
- Fá rétt útlit fyrir hverja verslunarkeðju.
- Tryggja að sömu réttu upplýsingar fari í öll skjöl.
Áður en þú byrjar
- Þú þarft að skrá þig inn í Telvu með aðgang að vörum.
- Varan þarf að vera til í vöruskránni með réttar upplýsingar.
01Velja vöru
Finndu vöruna
Opnaðu Stofnskjöl og veldu vöruna sem á að stofna. Kerfið sækir upplýsingar hennar úr vöruskránni og merkingunum.
Aðgangur að allri handbókinni
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.