Fara beint í efnið

Telva Tímavakt

Innstimplun, viðvera og dagspassar úr aðgangskerfi vinnustaðarins

StarfsfólkÚtgáfa 1.6 · Uppfært 2. september 2026 · 8 kaflar

Tímavakt heldur utan um inn- og útstimplanir starfsfólksins úr aðgangskerfinu sem er fyrir á vinnustaðnum. Þú sérð í rauntíma hverjir eru í húsi, ferð yfir stimplanir dagsins, leiðréttir ef einhver gleymdi sér, heldur skrá yfir starfsfólkið og gefur verktökum og gestum dagspassa þar sem viðveran ber sig sjálf saman við reikninginn sem berst síðar. Allar breytingar eru rekjanlegar: upprunalega stimplunin geymist alltaf.

Til hvers

  • Sjá í rauntíma hverjir eru í húsi og hve lengi þeir hafa verið inni.
  • Fara yfir stimplanir dagsins og leiðrétta gleymdar inn- eða útstimplanir.
  • Halda starfsmannaskrá með tengingu við aðgangskerfið og starfsmannanúmer úr launakerfinu.
  • Gefa verktökum og gestum dagspassa og bera viðveru þeirra saman við reikninga.
  • Taka saman viðveru launatímabils og sækja CSV fyrir launakeyrsluna.

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft aðgang að svæðinu „Tímavakt“ (stillt í Notendur).
  • Aðgangskerfið sendir stimplanir sjálfkrafa gegnum agentinn, eða þú flytur inn CSV-skýrslu undir Stillingar.
  • Til að leiðrétta stimplanir þarftu breyta-heimild.

01Viðvera · hverjir eru í húsi

Fyrsti flipinn sýnir lifandi stöðu og uppfærist sjálfkrafa á hálfri mínútu.

  1. Lestu stóru töluna

    „Inni núna“ er fjöldi þeirra sem hafa stimplað sig inn en ekki út. Græni punkturinn við hvert nafn púlsar á meðan viðkomandi er í húsi, og þú sérð hvenær hann kom inn og hve lengi hann hefur verið.

  2. Fylgstu með frávikum

    Spjaldið „Frávik“ telur stimplanir sem vantar á móti: einhver stimplaði sig inn en aldrei út (gleymd útstimplun) eða öfugt. Farðu á Frávik-flipann og lagaðu þau með tillögu kerfisins í einum smelli.

    ÁbendingGleymd útstimplun greinist sjálfkrafa: vakt sem hefur staðið lengur en hámarkið (sjálfgefið 16 klst) er lokuð til merkingar og verður frávik sem bíður þín.

  3. Grípðu vaktir sem eru að lengjast

    Gulur borði nefnir þá sem hafa verið inni lengur en 75% af hámarksvaktinni þinni (12 klst þegar hámarkið er sjálfgefið 16). Þeir eru líka merktir gulir í listanum og lengsta viðveran raðast efst innan hverrar deildar.

    ÁbendingÞetta er forvörn, ekki leiðrétting: eitt símtal núna sparar leiðréttingu í fyrramálið. Þröskuldurinn fylgir hámarksvaktinni í Stillingum og breytist með henni.

  4. Óþekktar stimplanir

    Ef einhver stimplar sig inn sem kerfið þekkir ekki (nýr starfsmaður sem ekki er búið að tengja) birtist talan á „Óþekktar stimplanir“. Þær bíða undir Stillingar þar sem þú tengir þær við réttan starfsmann með einum smelli.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.