Fara beint í efnið

Telva Umræða

Spjall sem situr hjá gagninu sjálfu

SamvinnaÚtgáfa 2.0 · Uppfært 2. september 2026 · 5 kaflar

Telva Umræða er spjall sem er fest við hlutina sjálfa: reikninga, verkefni, viðgerðir og sölupantanir. Í stað þess að spyrja í tölvupósti eða Teams, þar sem samhengið týnist, skrifar þú athugasemdina beint á færsluna. Umræðan geymist hjá henni, er rekjanleg og finnst aftur eftir tvö ár.

Til hvers

  • Spyrja út í reikning beint á reikningnum, t.d. „af hverju er þessi 40% hærri en síðast?“
  • Ræða verkefni á verkefninu sjálfu svo öll umræðan sé á einum stað
  • @merkja samstarfsfólk sem fær þá bjöllu í Stjórnstöð og tölvupóst
  • Halda rekjanlega sögu: hver sagði hvað, hvenær, um hvaða færslu

Áður en þú byrjar

  • Þú þarft að vera með innskráningu í Stjórnstöð og aðgang að svæðinu sem hluturinn tilheyrir (reikningar eða verkefni)
  • Tölvupóst-tilkynningar berast aðeins fólki með skráð netfang í Notendum

01Opna umræðu á reikningi

  1. Flettu reikningnum út

    Á reikningalistum (t.d. í Reikningum eða á birgjaspjaldi) smellir þú á röðina til að fletta henni út. Fyrir neðan vörulínurnar birtist Umræðu-spjaldið.

    ÁbendingGyllt spjall-merki með tölu við reikningsnúmerið þýðir að umræða er þegar til á reikningnum.

  2. Skrifaðu athugasemdina

    Skrifaðu í reitinn neðst og ýttu á Enter til að senda. Shift+Enter gerir nýja línu.

Restin af handbókinni

Aðgangur að allri handbókinni

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.
Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.