Fara beint í efnið
Handbækur
Fjármál

Telva Útgjöld · Kortaskrá

Kortin, færslurnar og fylgiskjalið sem á að fylgja hverri

Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20264 kaflar

Kortaskráin heldur utan um kortin sem félagið greiðir með og tengir hverja kortafærslu við fylgiskjalið sem á að fylgja henni. Telva gefur ekki út kort og stýrir engum heimildum: skráin er spegill af kortum sem bankinn gaf út, og tilgangur hennar er að hægt sé að para kortayfirlitið og sjá hver ber ábyrgð á hverri færslu. Kortafærsla án fylgiskjals er ekki ópöruð lína á skjá heldur skráð reglubrot · peningur félagsins fór út án gagns, og 8. gr. bókhaldslaga nr. 145/1994 krefst þess að sérhver færsla sé studd fylgiskjali. Vanti kvittun sendir Telva starfsmanninum hlekk sem hann opnar í símanum, tekur mynd og er búinn.

Til hvers

  • Vita hver ber ábyrgð á hverri kortafærslu, án þess að spyrja neinn.
  • Sjá svart á hvítu hvaða færslur eiga engin fylgiskjöl og hversu lengi þær hafa staðið.
  • Ná kvittuninni af starfsmanninum án þess að hann þurfi app, aðgang eða rafræn skilríki.
  • Halda frumritunum í sjö ár eins og lögin krefjast, án þess að nokkur haldi utan um möppu.

Áður en þú byrjar

  • Félagið þarf eininguna „Telva Útgjöld · Kortaskrá“ virka. Hún er seld viðbót og er kveikt í Telva Stjórn.
  • Þú þarft svæðið „Telva Útgjöld“ hakað á þig í Notendur.
  • Starfsmennirnir sem eiga kortin þurfa að vera í starfsmannaskránni svo hægt sé að tengja kort við mann.
  • Kvittanahlutinn sjálfur (móttaka, pörun, áskriftir) er EINING SÉR · „Telva Útgjöld“. Kortaskráin nýtist best með henni en krefst hennar ekki.

01Kortaskráin

Skráðu kortin sem félagið greiðir með, hvaðan sem þau koma. Þetta er spegill, ekki útgáfa.

  1. Skráðu kortið

    Hvert kort ber heiti, útgefanda, síðustu fjóra stafina og gjaldmiðil. Síðustu fjórir eru það sem kortayfirlitið sýnir og það sem pörunin notar til að þekkja færsluna.

    PassaðuFullt kortanúmer er hvergi geymt og á hvergi að slá inn. Síðustu fjórir duga til pörunar og eru það eina sem þarf.

  2. Tengdu kortið við mann eða félagið

    Kort tengist annaðhvort starfsmanni eða er félagskort. Tengingin er það sem svarar spurningunni „hver ber ábyrgð á þessari færslu“ þegar kvittun vantar.

    ÁbendingEinn starfsmaður má eiga mörg kort · debet, kredit og ferðakort. Skráin þvingar ekkert um það.

  3. Gefðu því lit ef það hjálpar

    Kort fær lit eftir útgefanda sjálfkrafa, en þú mátt velja hann handvirkt. Það er gagnlegt þegar félagið á mörg kort hjá sama útgefanda.

  4. Ógiltu kort sem er hætt í notkun

    Kort sem rennur út, týnist eða fylgir starfsmanni sem hættir er ÓGILT. Það hverfur úr virkum listum en röðin lifir áfram.

    PassaðuÞað er ENGIN eyðingarleið í kortaskránni og það er ekki gleymska. Kortafærslur fyrri ára vísa í röðina og bókhaldið verður að haldast læsilegt í sjö ár.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið