Fara beint í efnið
Handbækur
Rekstur

Vélaskrá

Hver vél á einum stað: staðsetning í húsinu, saga, handbækur og viðhalds- og smuráætlun

Útgáfa 1.0Uppfært 3. september 20264 kaflar

Vélaskráin er skrá yfir tækin í húsinu: framleiðanda, kaupár, handbækur, staðsetningu og viðhald. Hún svarar tveimur spurningum sem annars kosta símtal: hvar er þessi vél, og hvenær var síðast gert við hana. Ofan á skrána liggur viðhalds- og smuráætlun sem segir hvað er í lagi, hvað er að renna út og hvað er komið fram yfir.

Til hvers

  • Halda einni skrá yfir vélar og tæki í stað lista í möppum.
  • Finna vél eftir heiti eða flokki og sjá hvar hún stendur.
  • Sjá hvaða viðhald er að renna út og hvað er útrunnið.
  • Skrá framkvæmt viðhald svo sagan haldist.
  • Merkja hvaða vélar stöðva vinnsluna ef þær bila, svo forgangur sé skýr.

Áður en þú byrjar

  • Skráðu vélina fyrst. Bæði staðsetning og viðhaldsáætlun hanga á vélinni.
  • Húsayfirlitið krefst þess að húsateikning sé skráð. Án hennar virkar vélalistinn óbreyttur en teikningin er tóm.

01Vélalistinn

  1. Skráðu vél

    „Ný vél“ tekur heiti, flokk, framleiðanda, kaupupplýsingar og handbækur. Allt situr á einum stað svo það finnist þegar á þarf að halda.

  2. Leitaðu og síaðu

    Leitarreiturinn tekur heiti vélar og flokkavalið þrengir listann. Standi „Engin vél passar við síuna“ er sían of þröng, ekki skráin tóm.

  3. Merktu kritískar vélar

    Vél sem stöðvar vinnslu ef hún bilar er merkt kritísk. Þær fá forgang í viðhaldi og eru taldar sér efst á síðunni.

  4. Skoðunaraðgangur

    Sumir hafa skoðunaraðgang: þeir mega skoða en ekki breyta. Þá stendur það efst og hnapparnir eru óvirkir.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið