Telva Verkefni heldur utan um það sem þarf að gera. Þú skráir verkefni á örskotsstundu með íslenskri hraðskráningu, úthlutar því á réttan starfsmann og fylgist með stöðunni í þeirri sýn sem hentar. Sá sem fær verkefni eða er merktur í umræðu fær bjöllu og tölvupóst frá Telvu, svo ekkert gleymist á milli manna.
Til hvers
- Skrá verkefni hratt, með forgangi, fresti, lista og ábyrgð í einni línu.
- Úthluta á starfsmann sem fær strax tilkynningu og póst frá telva@telva.is.
- Fylgjast með í fimm sýnum: Borð, Listi, Forgangur, Dagatal og Minn dagur.
- Brjóta stór verk í skref, setja áminningar, hengja við skjöl og ræða í umræðu.
- Tengja fresti við Google-, Outlook- eða Apple-dagatal.
Áður en þú byrjar
- Þú þarft að skrá þig inn í Telvu með aðgang að verkefnum.
- Starfsmenn sem á að úthluta verkefnum þurfa að vera til í notenda-skránni.
01Skrá verkefni
Hraðskráning með íslensku máli
Skrifaðu verkefnið í hraðskráninguna og það bætist strax á listann. Kerfið les út smáatriði úr textanum sjálfum: forgang með upphrópunarmerki, lista með myllumerki, ábyrgð með hunda og dagsetningu úr orðum.
ÁbendingDæmi: Klára datablað á morgun !mikilvægt @bokari #mánaðarleg verður að verki með fresti á morgun, forgangi Mikilvægt, á bókaranum og í listanum Mánaðarleg.
Nýtt verk opnast strax
Þegar þú skráir verk opnast það sjálfkrafa svo þú getir fyllt inn lýsingu, skref og annað. Það hverfur ekki niður listann.
Flýtileiðir
Ýttu á Cmd+K (eða Ctrl+K) til að opna skipana-leit: stofna verk, skipta um sýn eða hoppa á verkefni með lyklaborðinu. Einfaldar styttingar: n fyrir nýtt verk, b fyrir Borð, l fyrir Lista.
Aðgangur að allri handbókinni
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.