Fara beint í efnið
Handbækur
Sala & markaður

Telva Sölublöð

Sölublað og næringargildi hverrar vöru, tilbúið til að senda

Útgáfa 1.0Uppfært 2. september 20262 kaflar

Sölublaðið er ein blaðsíða um vöruna: mynd, lýsing, pakkningar, strikamerki og næringargildi, í vörumerki félagsins. Blaðið er byggt úr vöruskránni sjálfri, svo það segir alltaf það sama og kerfið. Þú velur vöru, ferð yfir blaðið og sækir það sem PDF eða sendir það beint.

Til hvers

  • Senda kaupanda faglegt blað um vöruna án þess að hanna neitt.
  • Hafa næringargildi og pakkningar á einum stað sem stemmir við vöruskrána.
  • Uppfæra blaðið sjálfkrafa þegar varan breytist.

Áður en þú byrjar

  • Varan þarf að vera til í vöruskránni.
  • Mynd, lýsing og næringargildi koma af vöruspjaldinu. Vanti reit birtist hann ekki á blaðinu.

01Að búa til sölublað

  1. Veldu vöruna

    Opnaðu Sölublöð og veldu vöruna. Kerfið sækir sjálft mynd, lýsingu, pakkningu og strikamerki af vöruspjaldinu.

  2. Farðu yfir næringargildin

    Næringargildin koma úr merkingum vörunnar. Séu þau ekki skráð stendur blaðið án þeirra fremur en að sýna núll.

    PassaðuNæringargildi eru merkingar á matvæli. Staðfestu töluna gegn uppskriftinni eða greiningunni áður en blaðið fer til kaupanda.

  3. Sæktu eða sendu

    Sæktu blaðið sem PDF eða sendu það beint úr kerfinu. Það ber merki félagsins og liti þess.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið