Fara beint í efnið

Viðhaldskerfi fyrir vélar og tæki

Telva geymir skrá yfir vélar og tæki, viðhaldssögu hverrar vélar og smuráætlun sem sýnir hvað er að renna út. Bilanir eru skráðar í símanum og viðgerðinni úthlutað á starfsmann.

Prófa sýnidæmið
Vélar og tæki í Telvu í síma: vélar í rekstri, opnar verkbeiðnir og næsta reglubundna viðhald.

Skjámynd úr Telva Sýnidæmi, með tilbúnum gögnum.

  1. Ein skrá yfir vélar og tæki

    Vélaskráin geymir framleiðanda, kaupár, handbækur, staðsetningu og viðhald hverrar vélar. Hún svarar tveimur spurningum sem annars kosta símtal: hvar er vélin og hvenær var síðast gert við hana. Leitað er eftir heiti eða flokki. Húsayfirlitið sýnir vélarnar á húsateikningu félagsins; teikningin þarf að vera skráð áður.

  2. Viðhalds- og smuráætlun

    Áætlunin sýnir hvað er í lagi, hvað er að renna út og hvað er komið fram yfir. Framkvæmt viðhald er skráð svo sagan haldist.

  3. Vélar sem stöðva vinnslu

    Vél sem stöðvar vinnslu ef hún bilar er merkt sem mikilvæg. Slíkar vélar fá forgang í viðhaldi og eru taldar sér efst á síðunni. Sumir notendur fá skoðunaraðgang: þeir mega skoða en ekki breyta.

  4. Bilanir og viðgerðir

    Bilun er skráð í símanum með forgangi og fresti og henni úthlutað á starfsmann, sem fær tilkynningu með bjöllu og tölvupósti. Bilun sem enginn ber ábyrgð á stendur sem „Óúthlutað“ og sést sem slík. Á bilun má hlaða upp mynd og skrá varahluti sem voru notaðir, og sagan geymir hver skráði, hver tók við og hvenær staðan breyttist.

Einingar

Einingarnar sem koma við sögu.

Allar einingar Telvu
  • Vélar og tæki

    Tækjaskrá, húsayfirlit, viðhaldssaga og smuráætlun sem sýnir sjálf hvað er að renna út.

  • Viðgerðir og verkefni

    Skráðu bilun í símanum, úthlutaðu viðgerðinni og fylgstu með framvindunni.

  • Verkefnin mín

    Þín verkefni, samþykktir og áminningar á einum stað. Ekkert dettur milli skips og bryggju.

Viðhaldskerfi

Spurt og svarað.

Hvað þarf til að skrá vél?

Heiti, flokk, framleiðanda, kaupupplýsingar og handbækur. Staðsetning og viðhaldsáætlun hanga á vélinni, svo vélin er skráð fyrst.

Hvernig sést hvað er að renna út?

Viðhalds- og smuráætlunin sýnir hvað er í lagi, hvað er að renna út og hvað er útrunnið.

Er hægt að sjá vélarnar á teikningu af húsinu?

Já, ef húsateikning er skráð. Án hennar virkar vélalistinn óbreyttur en teikningin er tóm.

Geta aðrir skoðað án þess að breyta?

Já. Notandi með skoðunaraðgang má skoða en ekki breyta.

Hvernig er bilun skráð?

Í símanum, með lýsingu, forgangi og fresti. Viðgerðinni er úthlutað og sá sem tekur við henni fær tilkynningu.

Er hægt að skoða Viðgerðir og verkefni áður en kynning er bókuð?

Já. Þau eru í Telva Sýnidæmi á demo.telva.is, með tilbúnum gögnum.

Sjá nánar

Fleiri lausnir í Telvu.

Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.