Fara beint í efnið

Næringargildi og innihaldslýsing úr uppskriftinni

Telva reiknar næringargildi og innihaldslýsingu beint úr uppskriftinni. Hráefnin eru skráð einu sinni með ofnæmisvöldum og næringargildi, og uppskriftirnar sækja allt þangað.

Prófa sýnidæmið
Uppskriftir í Telvu í síma: fjöldi virkra uppskrifta, uppskriftir í vinnslu og hlutfall þar sem næring og merkingar eru samstíga.

Skjámynd úr Telva Sýnidæmi, með tilbúnum gögnum.

  1. Hráefnaskráin

    Hvert hráefni ber heiti, næringargildi og ofnæmisvalda og er skráð einu sinni. Uppskriftirnar sækja allt þangað, svo leiðrétting á hráefni lagar allar uppskriftir sem nota það. Hráefnaskrána má flytja inn úr skjali í stað þess að slá hana inn.

  2. Uppskrift í hvaða lotustærð sem er

    Veldu hráefni og magn og kerfið sýnir jafnóðum heildarþyngd, ofnæmisvalda og næringargildi á 100 g. Sláðu inn lotustærðina sem á að framleiða; hlutföllin haldast og magntölurnar reiknast upp á nýtt.

  3. Næring og merkingar

    Næringargildi og innihaldslýsing reiknast beint úr uppskriftinni og fara á miðann eftir yfirferð. Berðu niðurstöðuna saman við greiningu vörunnar áður en hún fer á umbúðir. Ofnæmisvaldar koma af hráefninu; vanti þá þar reiknar uppskriftin þá ekki.

  4. Úr Excel og á blað

    Uppskrifta-innflutningur les uppskriftir úr Excel og parar hráefnin sjálfkrafa. Uppskriftarblaðið er prentvænt, fer beint í vinnsluna og er alltaf nýjasta útgáfan.

Einingar

Einingarnar sem koma við sögu.

Allar einingar Telvu
  • Uppskriftir

    Haltu hlutföllum og viðmiðum á einum stað. Næringargildi og merkingar reiknast af sömu uppskrift, svo þau geta ekki farið á skjön.

  • Hráefnaskrá

    Skráðu styrk, ofnæmisvalda og næringargildi einu sinni og notaðu í hverri uppskrift sem á við.

  • Uppskrifta-innflutningur

    Lestu uppskriftir úr Excel og paraðu hráefnin sjálfkrafa.

  • Næring og merkingar

    Næringargildi og innihaldslýsing reiknuð beint úr uppskriftinni, tilbúin á miðann.

Næringargildi

Spurt og svarað.

Hvaðan koma ofnæmisvaldar?

Af hráefninu. Þeir eru skráðir einu sinni í hráefnaskrána og berast í hverja uppskrift sem notar hráefnið. Vanti ofnæmisvald á hráefnið reiknar uppskriftin hann ekki.

Er útreikningurinn endanlegur?

Næringargildi og ofnæmisvaldar eru merkingar á matvæli. Berðu þau saman við greiningu vörunnar áður en þau fara á umbúðir.

Hvað gerist þegar hráefni er leiðrétt?

Leiðréttingin nær til allra uppskrifta sem nota hráefnið.

Er hægt að flytja uppskriftir inn úr Excel?

Já. Uppskriftir eru lesnar úr Excel og hráefnin pöruð sjálfkrafa.

Er hægt að reikna uppskrift upp í aðra lotustærð?

Já. Hlutföllin haldast og magntölurnar reiknast upp á nýtt.

Er hægt að prenta uppskriftina fyrir vinnsluna?

Já. Uppskriftarblaðið er prentvænt og ber lotustærðina sem var valin, svo vinnslan hafi rétt magn fyrir framan sig.

Sjá nánar

Fleiri lausnir í Telvu.

Næsta skref

Hvað viltu sjá betur í rekstrinum?

Í kynningu er farið yfir þarfir fyrirtækisins, viðeigandi einingar og tengingar. Þú færð skýra mynd af umfangi áður en ákvörðun er tekin.

Prófa sýnidæmið

Kynning án skuldbindingar.