Telva Greind
Spurðu um reksturinn á mannamáli og fáðu svar úr þínum eigin tölum
Útgáfa 1.0Uppfært 2. september 20262 kaflar
Telva Greind svarar spurningum um reksturinn á íslensku. Þú skrifar spurninguna eins og þú myndir spyrja samstarfsmann, og svarið er byggt á tölunum í þínu eigin kerfi, ekki á almennum fróðleik. Greindin les það sem þú hefur aðgang að og ekkert annað.
Til hvers
- Fá svar við rekstrarspurningu án þess að byggja skýrslu fyrst.
- Fletta upp tölu sem þú manst að sé til en veist ekki hvar.
- Skilja hvað breyttist milli tímabila og hvers vegna.
Áður en þú byrjar
- Þú þarft að skrá þig inn og hafa aðgang að þeim svæðum sem spurningin snertir.
- Tölurnar koma úr bókhaldskerfinu sem félagið er tengt við. Sé tengingin niðri sést það í svarinu.
01Að spyrja
Því nákvæmari sem spurningin er, því nákvæmara er svarið.
Skrifaðu spurninguna
Opnaðu Telva Greind og skrifaðu spurninguna á íslensku. Nefndu tímabil ef það skiptir máli, til dæmis „hver var salan í ágúst miðað við ágúst í fyrra“.
ÁbendingSpurning sem nefnir tímabil, vöru eða viðskiptavin fær svar sem hægt er að treysta. Spurning án afmörkunar fær breiðara svar.
Lestu svarið með tölunum
Svarið vísar í raun-tölur úr kerfinu. Séu forsendur óljósar segir Greindin frá því í stað þess að giska.
PassaðuGreindin er aðstoð, ekki heimild. Áður en tala fer í skýrslu eða út úr húsi skaltu opna síðuna sem á hana og staðfesta hana þar.
Segðu okkur hver er að lesa
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.