Fara beint í efnið
Handbækur
Sala & markaður

Telva Markaðsmál

Haltu utan um póstlistann og mældu hvað markaðsstarfið skilar

Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20267 kaflar

Markaðsmál er svæðið þar sem markaðsstarf félagsins er haldið til haga. Póstlistinn heldur utan um hverjir mega fá markaðspóst frá félaginu, hvaða hópur á að fá hverja sendingu og hvernig afskráning er virt. Móttakendurnir byggja á viðskiptavinum úr bókhaldskerfinu, svo ekkert netfang er slegið inn handvirkt og listinn úreldist ekki. Sömu sölutölur liggja undir svæðinu og undir sölugreiningunni, svo markaðsstarfið og salan tala sama máli.

Til hvers

  • Eiga einn snyrtilegan póstlista í stað Excel-skjala á víð og dreif.
  • Senda markaðspóst sem stenst fjarskiptalög: rétt netföng, virk afskráning, sendandi á hreinu.
  • Halda utan um hver sendi hvað og hvenær, án þess að neinn þurfi að muna það.
  • Sjá svart á hvítu hvaða markaðsaðgerðir borga sig og hverjar ekki.

Áður en þú byrjar

  • Félagið þarf að hafa eininguna „Markaðsmál“ virka. Hún er sjálfgefið slökkt og er kveikt í Telva Stjórn.
  • Þú þarft svæðið „Markaðspóstur“ hakað á þig í Notendur. Það er aldrei sjálfgefið, ekki einu sinni hjá stjórnendum, því fjöldasending fer út úr húsi í nafni félagsins.
  • Til að SENDA þarf að auki hættuheimildina „Markaðspóstur á viðskiptavini“. Að skoða listann og undirbúa sendingu krefst hennar ekki.
  • Markaðsgreiningin les sölutölur úr bókhaldskerfinu og krefst Sölugreiningar. Félag sem hefur hana í dag heldur henni óbreyttri · hún stendur áfram á sínum stað í valmyndinni.

01Markaðsgreining

Markaðsgreining svarar spurningunni „skilaði þetta einhverju?“ og er sín eigin síða í valmyndinni, við hliðina á Markaðsmálum.

  1. Skráðu markaðsaðgerðina

    Hér skráir þú markaðsaðgerðir: auglýsingu, skjáauglýsingu í verslun, bækling, tilboð eða vörukynningu. Telva ber söluna á tímabilinu saman við það sem búast mátti við, leiðréttir fyrir söludögum, árstíð og óvenjulegum pöntunum, og skilar varfærnu mati á viðbótarsölu.

    ÁbendingSérðu ekki greininguna? Þá vantar annaðhvort Sölugreiningu hjá félaginu eða svæðið „Markaðsgreining“ á þig. Stjórnandi lagar hvort tveggja.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið