Telva Tenging
Tengdu bókhaldskerfið þitt við Telvu · Business Central, dk, Payday eða Regla
Útgáfa 2.1Uppfært 3. september 20267 kaflar
Telva les rekstrargögnin þín beint úr Microsoft Business Central. Tengingin er sett upp einu sinni, tekur um stundarfjórðung og er leidd áfram skref fyrir skref á tengiskjánum: stjórnandinn samþykkir aðganginn, Telva er skráð í Business Central og þú velur félagið þitt. Stöðuvísirinn segir þér alltaf nákvæmlega hvar þú ert og hvað er næst.
Til hvers
- Sjá stöðu gagnatengingarinnar á einum stað, með lifandi prufu-lestri.
- Tengja nýtt fyrirtæki við Business Central án tæknikunnáttu.
- Vita nákvæmlega hvaða skref vantar ef tengingin er ekki komin í gegn.
Áður en þú byrjar
- Þetta er stjórnenda-stilling: þú þarft aðgang að Notendur-svæðinu og breyta-heimild.
- Skref 1 og 2 þarf Microsoft-stjórnandi fyrirtækisins (Global Administrator) að gera, oft sami aðili og sér um tölvumálin.
- Fyrirtækið þarf virka Business Central áskrift í skýinu (Essentials eða Premium).
01Opna tengiskjáinn
Farðu í Mín stilling
Opnaðu Mín stilling í valmyndinni og smelltu á kortið „Business Central tengingin“. Efst sérðu stöðuna: grænt merki þýðir að tengingin er virk og les gögn, gult að uppsetningu vantar.
ÁbendingPrufu-lesturinn undir stöðunni sýnir raunverulegt svar úr Business Central, ekki bara stillingu. Ef hann sýnir nafn félagsins þíns er allt í lagi.
Segðu okkur hver er að lesa
Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.