Fara beint í efnið
Handbækur
Stjórn & stillingar

Telva Útlit

Lógóið þitt, litirnir þínir: kerfið verður þitt á einni mínútu

Útgáfa 2.0Uppfært 2. september 20265 kaflar

Á þessari síðu stillir þú hvernig kerfið lítur út fyrir alla notendur fyrirtækisins: lógóið í valmyndinni og innskráningunni, litina í öllu viðmótinu og heitin sem birtast í haus, prentskjölum og hjá AI-aðstoðarmanninum. Þú sérð lifandi forskoðun á meðan þú breytir, svo ekkert kemur á óvart.

Til hvers

  • Hlaða upp lógói fyrirtækisins sem birtist í valmynd, innskráningu og prentskjölum.
  • Velja litina fjóra sem allt viðmótið byggir á, með lifandi forskoðun.
  • Láta kerfið lesa litina sjálfkrafa úr lógóinu með einum smelli.
  • Breyta heitum: nafni fyrirtækisins, vörumerkinu í hausnum og nafni AI-aðstoðarmannsins.
  • Endurstilla allt á sjálfgefið ef eitthvað fór úrskeiðis.

Áður en þú byrjar

  • Þetta er stjórnenda-stilling: þú þarft aðgang að Notendur-svæðinu og breyta-heimild.
  • Breytingarnar gilda fyrir ALLA notendur fyrirtækisins, ekki bara þig.
  • Hafðu lógóið tilbúið sem PNG eða SVG á gegnsæjum grunni, mest 1,5 MB.

01Opna síðuna

  1. Farðu í Mín stilling

    Opnaðu Mín stilling í valmyndinni. Efst sérðu kortið „Útlit fyrirtækisins“. Smelltu á það. Ef þú sérð kortið ekki hefur þú ekki stjórnenda-aðgang; talaðu þá við þann sem stýrir notendum.

  2. Áttaðu þig á uppsetningunni

    Vinstra megin eru stillingarnar þrjár: Lógó, Heiti og Litir. Hægra megin er lifandi forskoðun sem sýnir nákvæmlega hvernig valmyndin og mælaborðið munu líta út með þínum stillingum.

    ÁbendingForskoðunin notar nákvæmlega sömu litavél og kerfið sjálft, það sem þú sérð þar er það sem notendur fá.

Restin af handbókinni

Segðu okkur hver er að lesa

Skráðu fyrirtæki og samskiptaupplýsingar til að opna alla kafla handbókanna. Aðgangurinn er vistaður í þessum vafra. Upplýsingarnar fylgja aðgangsbeiðninni til Telvu og gera mögulegt að hafa samband um notkun kerfisins.

Ekki þarf að stofna notandaaðgang eða velja lykilorð.

Skoðaðu hvað hentar þínum rekstri.

Kynningin er sniðin að þínum rekstri: hvaða einingar eiga við, hvaða tengingar eru í boði og hvað þarf að undirbúa. Engin skuldbinding.

Prófa sýnidæmið